mánudagur, júní 11, 2007
Master og Master
Sæl og blessuð Þetta erum við hérna Master Jón og Master Elísabet. Vorum að skila verkefnunum okkar og var það síðasta skrefið í skólanum okkar. Síðasta verkefnið sem við gerum hérna. Þetta er alveg yndisleg tilfinning að hafa náð að klára þetta, svona líka glæsilega :D
Núna tekur bara sumarfríið við með öllum sínum hamagangi. Við höfum alveg nóg fyrir stafni á næstu dögum og vikum. Erum að fara í bekkjamyndatöku á eftir og svo sennilegast í feiknapartý í kvöld þar sem við hittum alla krakkana, það verður skemmtilegt að sjá suma krakkana sem við erum ekkert búin að sjá meira eða í minna í 3 ár, þrátt fyrir að vera með þeim í "bekk".
Ætlum ekki að hafa þetta lengra því að sólin og sumarið bíður ekki eftir okkur. Við ætlum að fara út og láta geilsa sólarinnar dynja á okkur.
Master Jón og Master Elísabet
posted by Nonni & Beta 11:07
|
laugardagur, júní 02, 2007
Góða veðrið og lærdómur
Hérna í Þrándheimi er komið sumar. Veðrið í gær og í dag er alveg frábært, um 20°C hiti og sól, svo þurfum við að vera inni að læra. Held að ég geti alveg fullyrt að það verður alveg frábært að vera hérna eftir mánudaginn eftir viku þegar við verðum búin að skila inn ritgerðunum okkar og komumst því í smá sumarfrí. Þó að við verðum að pakka og ganga frá, þá verður það gert þegar sólin er lægra á lofti en 30° frá sjóndeildarhringnum og/eða skýin á himnum hylja hið minnsta 65% af sjáanlegum himni. Þannig nýtum við sólina sem best og pökkunin verður ekki trufluð af dagdraumum um sólarsleikingar og ís í brauðformi.
Þar hafiði það Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 13:01
|
|