þriðjudagur, maí 29, 2007
2 vikur í verkefnaskil Hérna í Þrándheimi er komið vor og alveg að koma sumar. Frábært að geta skilið úlpu og jakka eftir heima þegar maður stelst út úr húsi. Fórum í bíó á nýju myndina um Sjóræningja Karabíahafsins: Við heimsenda, og hún var auðvitað alveg fínasta skemmtun eins og maður býst við. En það sem ég ætlaði bara að benda á að þegar við komum út úr bíóinu var svo gott veður, næstum bara ennþá heitt úti og klukkan að verða 10 um kvöld. Það er núna allt svo spennandi framundan, sumarið, heimsókn, ferðalag og auðvitað þetta sem allir elska... flutningar.
Eftir tvær vikur verðum við búin að skila mastersritgerðinni okkar, verkefnin ganga svona þokkalega þ.e.a.s. við sjáum alveg fram á að við klárum þetta á tilsettum tíma. Eftir að við skilum tekur við undirbúningur flutningana og ýmislegt annað sem þarf að gera áður en við getum flúið land. Erfitt að trúa því að dvölinni í Noregi er að ljúka, þessi 5 ár sem hljómuðu eins og heil eilífð eru bara að vera búin. Það verður erfitt að yfirgefa Þrándheim, frábær staður og yndislegt að vera hérna. Við erum strax farin að sakna ótrúlegustu hluta hérna.
Mamma hans Nonna kemur í heimsókn á sjálfan þjóðhátíðardaginn og verður með okkur síðustu dagana í Paradís (sem er auðvitað Þrándheimur). Verðum örugglega í stuði hérna síðustu dagana að njóta sumarsins.
Svo eftir 4 vikur verðum við í Gautaborg nýkomin af JT tónleikum og vonandi að njóta þess sem Gautaborg hefur uppá að bjóða. Eftir tónleikana verðum við sennilega að fara aftur til Þrándheims til að ganga endanlega frá flutningunum. Svo þegar við verðum búin að koma öllu dótinu á sinn stað ætlum við að fara í landþráð ferðalag um Noreg enda höfum við séð alltof lítið af landinu. Ætlum til Bergen í heimsókn til Eirin og svo ætlum við líka að skoða firðina sem þeir eru alltaf að tala um :P ætlum líka að Preikestolen og Kjeragbolten, bæði frábær æfing fyrir lofthrædda. Svo sjáum við alveg örugglega eitthvað fleira, en þetta er svona efst á óskalistanum okkar.
Þá vitiði það Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 09:08
|
fimmtudagur, maí 17, 2007
17.maí Til hamningju Noregur og Norðmenn, í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Við munum byrja daginn á því að fara í hefðbundinn morgunmat til vina okkar, þar sem svona morgunverðarhlaðborð er voða vinsælt hjá þeim hérna. Svo ætli við förum ekki niður í bæ að kíkja á skrúðgönguna. En hún er alltaf rosalega flott, allir taka þetta mjög hátíðlegt og nánast allir í þjóðbúningum. Þegar allir eru svona fínir myndar það rosalega fína stemmningu. Skrúðgangan hérna er alveg ótrúlega löng og fjölbreytt, öll íþróttafélög eru með í henni, mæta í sínum litum. Annars virðast ekki bara íþróttafélög vera dugleg að mæta því að það er stundum eins og nánast allir hópar, nemendafélög í öllum skólum og jafnvel saumaklúbbar. Stundum vildi maður að skrúðgöngurnar heima væru aðeins betri. Eina skrúðgangan sem stendur undir nafni er GayPride gangan, og jú kannski Þorláksmessu-stress-geðveikis-verslunargangan en hún er ekki eins skipulögð og hún virðist vera.
En við vöknuðum nú upp við leiðinlegar fréttir héðan frá Þrándheimi, en einhver af gömlu tréhúsunum sem liggja við ána standa í ljósum logum, en þessi hún eru ásamt Niðarósdómkirkjunni vinsælasta póstkortamyndaefnið hérna í Þrándheimi. Vonandi að þetta verði ekki alvarlegt.
En svona að öðru þá eru dagarnir hjá okkur þannig að við erum meira eða minna að vinna í lokaverkefnunum okkar. En það eru einmitt 25 dagar þangað til að við skilum því inn. Ótrúlega stutt í að skólinn sé bara búinn og við kveðjum Noreg.
Enn og aftur eins og einhver sagði... Gratulerer Norge
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 08:18
|
sunnudagur, maí 13, 2007
Loksins orðinn nógu gamall til að kjósa!
Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag Hann á afmæli hann Ragnar Hann á afmæli í dag
Til hamningju Ragnar litli bróðir. Leiðinlegt að þú fékkst ekki að kjósa, það þýðir ekkert að vera SÚR yfir því. :)
Elísabet stóra systir og Nonni
posted by Nonni & Beta 12:04
|
miðvikudagur, maí 02, 2007
Mæ Já það er bara kominn maí. Hérna í Þrándheimi er allt svona þokkalegt að frétta, það farið að styttast allískyggilega í skólalok og heimsókn og ferðalag og heimkomu og flutninga og nýja vinnu. Miðað við öll og-in þá verður mikið um að vera næstu mínútur, klukkutíma, daga, vikur, mánuði og ár.
Á morgun erum við að fara með Íslendingafélaginu Kjartani í mat, þar sem stjórnin ætlar að bjóða félagsmönnum út að borða á einum fínasta veitingastað borgarinnar.
Þar sem maður er svo agalega upptekinn af öðru en að skrifa hérna þá verður svo gloppótt flæðið hérna, finnst ykkur það ekki? Eins og þeir hafa lesið allt sem er skrifað hérna sjá, þá var eins og það hafi ekki verið neinir páskar. En þeir voru í Þrándheimi líka... í alvöru... ég lofa. Það er bara svona þegar maður hefur svo mikið annað að gera.
Fórum um daginn að kjósa, höfum aldrei kosið hérna áður. Vonandi kemst þetta til skila allt saman því það var ekki beint auðvelt að átta sig á þessu kosningakerfi. Konan sem var að hjálpa okkur var ekkert alveg inní þessu, sagði t.d. "skrifið bara niður alla sem þið viljið kjósa." (þýtt úr norsku). HA! eigum við að skrifa niður ÞÁ sem við viljum kjósa? Hvernig á maður að muna alla sem maður ætlar að kjósa... eina fólkið sem ég mundi eftir voru Ómar Ragnars og Árni Johnsen.... og ég veit nú ekki alveg hvort maður geti kosið þá báða... en... svo stóð á atkvæðaseðlinum að maður ætti að setja bara einn staf, þá fattaði ég þetta. Svo að ég teiknaði skíðastaf... með flottri leðuról, setti líka líka snjókorn og snjókarl... bara svo það verði enginn misskilningur. Það viljum við ekki!
Á afmælinu hennar Elísabetar fórum við niður í bæ og fengum okkur að borða á uppáhaldsstaðnum okkar og svo í bíó. Svo var mjög gott veður á afmælisdaginn hennar þannig að hún hlýtur að hafa verið góð stelpa á þessu ári eins og ein vinkona okkar orðaði það :D
Já það er komið sumar.
Kveðjur frá Þrándheimi Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 10:18
|
|