laugardagur, apríl 28, 2007
25 ára!!
Já hún Elísabet mín á afmæli í dag, 28.apríl.

Hérna kemur afmælissöngurinn
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Elísabet
Hún á afmæli í dag


Húrra húrra húrra

Þinn Nonni

posted by Nonni & Beta 12:45




miðvikudagur, apríl 18, 2007
Myndir af Brasilíuferðinni
Búin að setja inn myndir af Brasilíuferðinni.

posted by Nonni & Beta 10:08




fimmtudagur, apríl 05, 2007
Kominn heim frá Brazil
Eftir ca. 3 vikna ferðalag til Brasilíu er ég, Nonni (loksins) kominn heim. Það var alveg frábært í Brasilíu, sáum alveg ótrúlega mikið á þessum tíma sem við vorum úti. Vorum líka ekki bara á þessum hefðbundnu ferðamannastöðum og því sá maður mikið af ólíkum hlutum.
Datt í hug að setja inn það helsta sem við sáum og gerðum í ferðinni.

Við strákarnir fórum með lestinni frá Þrándheimi til Osló og hittum stelpurnar á Gardermoen, biðum þar um nóttina eftir fluginu til Amsterdam sem tók okkur til Sao Paulo. Flugferðin frá Amsterdam til Sao Paulo tók um 12 tíma en það var heppilegt að flugvélin var ekki alveg full og ég tékk 3 sæti alveg fyrir mig. Gat því lagt mig og horft á bíómyndir eins og ég vildi. Svo þegar við komum til Sao Paulo gistum við í Alphaville. Það eiginlega líka lítil borg út úthverfi Sao Paulo þar sem allt er voðalega Amerískt. Allt rosalega snyrtilegt og greinilega allir frekar efnaðir. Eitthvað sem er ekki almennt í Sao Paulo. En þetta er alveg rosalega stór borg.
En hótelið var mjög flott, vorum á 17.hæð og lofthræðslan lét segja til sín því að það var lítið verið að gera til að fela það að við vorum svona hátt uppi. Sundlaugin á hótelinu var líka á hentugum stað... á þakinu, 23.hæð.

Daginn eftir fórum við í heimsókn til Voigt-Siemens og sáum þar frmaleiðslu á túrbínum og öðrum búnaði til virkjana. Strákarnir sem eru í vélaverkfræði voru eins og litlar stelpur í nammibúð sem seldi barbiedúkkur... eða eitthvað á þá leið. Allt þarna var alveg rosalega stórt, vélarnar og skemmurnar nema kannski Brassarnir... því þeir eru talsvert lágvaxnari en gengur og hleypur í Noregi og á Íslandi.
Næstu daga skoðuðum við fyrirtækin, IESA/GE, Alstom, Wobben Windpower/Enercon.
Veit ekki alveg hvort að við eigum að vera að fara eitthvað meira út í hvað við skoðuðum þar... en í stuttu máli vorum við að skoða hvernig á alls konar stórir hlutir í virkjanir eru framleiddir. Jæja nóg um það sem sem við fórum í ferðina til að skoða.

Þarna inn á milli heimsókna fórum við til Foz do Iguaçu sem er borgin sem er rétt hjá Iguaçu fossunum og Itaipu stíflunni. Skoðuðum fossana sem voru alveg rosalega flottir, fórum í bátsferð upp ánna í átt af fossunum. Það var alveg ótrúlega gaman að fara í þessa bátsferð. Daginn eftir fórum við að stærstu virkjun í heimi... amk ennþá, því að Kínverjar eru að byggja eina sem verður stærri. En alla vega þá er þetta mannvirki alveg ótrúlega stórt.
Fórum líka í fuglagarð þar sem margir litríkir og flottir fuglar voru, eins og páfagaukar og túkanar. Á þessu svæði er alveg rosalega mikið af fiðrildum í öllum regnbogans litum og stærðum.

Eftir allar þessar heimsóknir hingað og þangað fórum við til Ríó de Janeiro. Þar sem við vorum í 3 nætur. Við fórum að skoða Sugar Loaf og Kriststyttuna m.a. þegar við fórum að skoða Sugar Loaf var alveg frábært veður, gott skyggni og við sáum vel yfir. En þegar við fórum að skoða Kriststyttuna sáum við ekki einu sinni styttuna sjálfa... hvað þá útsýnið í kring. Venjulega er útsýnið þaðan það besta í Ríó. En ekki þennan dag sem við fórum og voru flestir frekar súrir þarna uppi. Við fórum líka á ströndina. Ég ásamt 3 öðrum krökkum fórum á Copacabana á meðan hinir 4 krakkarnir fóru á Ipanema og spókuðu sig um fáklædd á hommaströndinni. Þ.e.a.s. hlutanum af Ipanema þar sem hommarnir halda sig. Fórum á leik á Maracana sem er einn allra frægasti völlur í knattspyrnusögunni. En í leiknum sem við sáum mættust Vasca de Gama og Flamengo. Bæði liðin frá Ríó og mikil spenna á leiknum. En leikurinn var sennilega mest merkilegur fyrir þær sakir að Romario var að reyna að skora sitt 1000asta mark á ferlinum. En hann er orðinn 41 árs gamall kappinn. Hann skoraði 1 mark en það mark var "bara" númer 999 á ferlinum. Þannig að það voru engin hátíðarhöld á þessum leik nema bara hjá Vasco de Gama því að þeir unnu leikinn 3-0. Það var mikið gert á þessum stutta tíma í Ríó en þetta var svona það allra helsta.

Svo frá Ríó fórum við til Angra. Þar er eina kjarnorkuver í Brasilíu, þar sem kjarnorkuver eru ekki í Noregi eða á Íslandi var svolítið spennandi að skoða þetta. Þó svo að svona kjarnorkuver hafi sýna galla hafa þau svo sannarlega sína kosti. En kjarnorkuverið var síðasta heimsókn okkar í ferðinni sem tengdist skólanum. Eftir kjarnorkuversheimsóknina fórum við til Paraty sem er alveg yndislegur bær við ströndina. Staðsettur mitt á milli Ríó og Sao Paulo. Munurinn á því að vera í Ríó og Paraty er svipaður og að vera í New York eða í Garðinum. Þarna gat maður slakað almennilega á. Fórum á ströndina og einum deginum eyddum við á bát. Þar sem við fórum um morguninn að bryggjunni og völdum okkur heppilegan skipstjóra sem tók okkur í bátinn sinn til að eyða saman deginum. Heill dagur á bát þar sem við sigldum á milli stranda og eyja kostaði um 500 kr á mann. Skipstjórinn var algjör latin sjarmör, og hét meira að segja Antonio. Hann tók okkur á bestu staðina til að snorkla og skoða. Sáum alveg rosalega mikið á þessum degi. Syntum með skjaldböku, sáum fullt fullt af fiskum, gáfum öpum banana og borðuðum mat á strandveitingastað á pínulítilli eyðieyju svo eitthvað sé nefnt.

Síðustu tvo dagana vorum við bara 6 í hópnum þar sem 2 strákana fóru, annar til Noregs og hinn að hitta vinkonu sína í Suður-Brasilíu. Og þá daga vorum við í Trindade, sem er enn minni og afskekktari bær en Paraty þar voru vorum við enn meira á ströndinni og slaka á ásamt því að fara út í lón eða einhvers konar svæði til að snorkla þar var mikið af fiskum og öðru lífi til að skoða.


Næsta málsgrein segir frá 33 tíma ferðalagi frá Trindade til Trondheim... ekkert skemmtilegt að gerast í næstu línum.
Frá Trindade var ferðinni haldið heim á leið. Að morgni 1.apríl vöknuðum við kl 6 og tókum rútu til Paraty, þaðan rúta til Taubaté, þaðan önnur rúta til Sao Paulo, þaðan önnur rúta á flugvöllinn í Sao Paulo, allnokkra klukkutíma bið á flugvellinum í Sao Paulo þar af svona 2 tímar í biðröð til að tékka okkur inn í flugvélina og svo aðrir 2 tímar að komast í gegnum öryggisskoðunina. Svo tók við 12 tíma flug ferð til Amsterdam og þar höfðum við bara klukkutíma til að komast að flugvélinni til Osló, sú flugferð tók bara nokkra klukkutíma og svo þegar við loksins komum til Noregs beið bara eftir manni löng röð til að tékka sig inn í Norwegian flugið til Þrándheims en engin taska, hún varð víst eftir í Amsterdam. En röðin til að tékka inn gekk mun hraðar en í Sao Paulo sem betur fer, þannig að við komumst í flugvélina til Þrándheims, það flug tók enga stund, eða um 55 mínútur. Svo þegar komið var til Þrándheims tók svo við flugrútan sem tekur rétt um klukkutíma og eftir hana kom ég heim.

Þetta er svona það allra helsta sem gerðist í Brasilíu. Auðvitað var það fleira sem gerðist sem hefði verið gaman að setja inn en ég held hreinlega að þetta sé orðið alveg nógu löng færsla.

Nonni

posted by Nonni & Beta 17:34