miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Dreams 4 lög, 1 ræða og 1 listaverk sem öll tengjast draumum...
- Dream on - Aerosmith
- All I have to do is Dream - Everly Brothers
- I have a Dream - Martin Luther King, Jr
- Dream a little dream of me - Ella Fitzgerald
- The Dream - Salvador Dalí
- Hvar er draumurinn? - Sálin Hans Jóns Míns
Bara til að minna á að við keyptum 6 alíslenska drauma, já Freyju súkkulaði Drauma í sjoppu hérna í Þrándheimi. Fréttum af þessarri sjoppu frá einum vakandi Íslending hérna sem tók eftir því að þeir seldu Draum og fleira nammi frá Freyju. En ef við byrjum á byrjuninni, (þið þurfum ekki að byrja aftur að lesa efst á færslunni, maður segir bara svona) þá við vorum á ferðinni á laugardaginn síðasta. Fórum í IKEA til að skoða og fá okkur kjötbollur svo gengum við í 45 mínútur til að kaupa ryksugupoka í ryksuguna sem var svo rosalega ódýr á sínum tíma, sennilega vegna þess að er vonlaust að finna poka í hana. Þar sem við vorum búin að labba svo lengi að þá ákváðum við að taka strætó heim. Hoppuðum uppí fyrsta strætóinn sem við sáum og svo skemmtilega vildi til að hann fór ekki stystu leiðina heim og keyrði framhjá KBS verslunarmiðstöðinni, og þar inni var samkvæmt áreiðanlegum heimildum Freyju draumar til sölu. Svo að við stukkum út úr strætónum til að skoða málið, og viti menn, þá voru þarna hópur af Freyju draumum í kassa, sem biðu eftir því að vera keyptir og étnir. Þannig að við keyptum okkur sex stykki og einn poka af Djúpum. Og það verður ekki sagt annað en að Draumur er alveg ótrúlega gott nammi.
Þá segir maður bara eins og Ellen Kristjánsdóttir söng í Eurovision 1990, "Ég læt mig dreyma ævintýraheima, hugurinn ber mig hálfa leið"
Haldið áfram að láta ykkur dreyma Þegar farið er út má ekki gleyma að skóna sína verður að reima.
Jón Lokbrá og Elísabet Lokbrá
p.s. varð að bæta einu lagi í viðbót fyrir alla aðdáendur Wayne's World Dream Weaver - Gary Wright
posted by Nonni & Beta 16:02
|
miðvikudagur, febrúar 14, 2007
Til hamingju með daginn!

Hún Berglind besta vinkona okkar á stór afmæli í dag og er hún nú orðin 25 ára "gömul", hún lengi lifi húrra húrra húrraaa....
Elsku Berglind til hamingju með daginn, megi hann vera sem allra skemmtilegastur.. vildum að við gætum verið hjá þér í dag, við erum allavega að hugsa til þín!!
Knús og kossar Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 08:12
|
mánudagur, febrúar 12, 2007
Fe brúar bilið Langa lengi hefur járn verið mikið notað í brúargerð. Efnistákn járns er Fe og þar sem það er notað til að búa til brýr er hægt að segja að Fe brúar bilið.
Fleira var það ekki í bili.
posted by Nonni & Beta 17:42
|
fimmtudagur, febrúar 08, 2007
Hrikalega kalt Hérna í Þrándheimi er búið að vera alveg hrikalega hrollkalt síðustu daga. Hitinn á vg.no í þessum töluðu orðum er -16°C í Þrándheimi. Til að gera smá samanburð þá er:
- -16°C í Trondheim/Þrándheimi (63° 23' N)
- -6°C í Osló
- -3°C í Bergen/Björgvin/(Bjargeinn)
- -6°C í Stavanger/Stafareiði
- -4°C í Tromsø - sem er lengst norður (69° 40' N)
Svo að við sendum ykkur öllum kaldar kveðjur frá staðnum þaðan sem Ísfólkið kemur.
Frosti og Frysta
posted by Nonni & Beta 12:40
|
laugardagur, febrúar 03, 2007
Febrúar fréttir Um daginn fengum við lánuð gönguskíði og allar þær græjur sem þurfa til að fara á gönguskíði. Þetta leit allt voðalega vel út, nóg af snjó og búið að snjóa næstum stanslaust í 2 vikur. Svo þegar við fengum skíðin þá kom rigning og hiti og það er ekki hægt að fara á gönguskíði núna. En við erum amk með skíði ef það fer aftur að snjóa. En það lítur alls ekki út fyrir að við komumst á skíðin fyrr en eftir að við erum búin að skila þeim aftur. En við vorum auðvitað það besta.
Svo vorum við að laga heimasíðuna okkar aðeins um daginn. Það eru engar breytingar útlitslega, en hún ætti að virka eins hjá öllum núna, linkarnir og ýmislegt svoleiðis.
Jæja... eigum við ekki bara að segja þetta gott í bili? Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 19:45
|
|