sunnudagur, desember 10, 2006
Vika í heimkomu
Í dag er sunnudagurinn 10.desember, annar í aðventu. Við erum á leiðinni í kirkju á eftir, það verður nefnilega haldið stórmessa hérna í Þrándheimi þar sem prestur íslenska safnaðarins kemur með íslenska kórinn í Noregi og fleira tónlistarfólk með sér. Man ekki alveg hvenær við fórum í messu síðast bara til að fara í messu. Undanfarnar messur hérna hafa verið frekar fámennar... höfum við heyrt, því við erum að fara í okkar fyrstu messu í Þrándheimi, en við eigum von á fleira fólki á eftir. Þetta verður örugglega ljómandi fínt.

Já og svo er einmitt 1 vika í heimkomu okkar og 2 vikur til jóla, en þegar maður hugsar til þess sem á eftir að gerast þar til við komum heim og svo það sem þarf að gera fyrir jólin verður sennilega alveg nóg að gera fram til jóla. Við erum nefnilega í prófum meira eða minni í næstu viku, bæði munnlegum og skriflegu. Og það sem meira er að skriflega prófið sem við tökum daginn fyrir heimkomu verður síðasta skriflega prófið okkar í skólanum.
Núna er að koma að fullt af svona síðasta þetta og síðasta hitt. Síðustu jólin sem nemendur í Noregi (höfum reyndar alltaf farið heim um jólin). Síðustu prófin. Síðustu jólaprófin. Síðasta haustönnin. Eitthvað verður það undarlegt að þurfa að fara að leita sér að vinnu, með það í huga að þetta verður ekki bara sumarvinna. Því að eins og sagt var hér að ofan var þetta síðasta haustönnin og enginn skóli þegar skammdegið kemur aftur.

Annars er allt fínt að frétta

Aðventukveðjur
Jón og Elísabet

posted by Nonni & Beta 10:36