sunnudagur, nóvember 26, 2006
Við erum komin í jólaskap
Og til að koma ykkur öllum í jólaskap þá settum við þessa auglýsingu hérna inn.


posted by Nonni & Beta 15:41




miðvikudagur, nóvember 22, 2006
Sweet sixteen.... +10
Það er afmælisbarnið sem skrifar.
Ef ég myndi halda uppá afmælið mitt og fullur salur af fólki væri mætt held ég að ræðan mín yrði einhvern veginn svona.
Virðulegur forseti lýðveldisins, ráðherrar og góðir gestir.
Ég vildi bara bjóða ykkur velkomin í afmælisveisluna mína, ég er núna orðinn jafngamall og fjöldi spila í hálfum spilastokk, tvær heilar sortir.
Loksins er maður ekki hálffimmtugur lengur, það hljómar eitthvað svo gamalt. Núna er ég aftur orðinn ungur. 26 ára.

Nú vil ég að allir syngi með mér afmælissönginn fyrir mig.
Hann á afmælí dag
Hann á afmælí dag
Hann á afmæl'ann Nonni
Hann á ammælí dag

Hann er aftur ungur í dag
Hann er aftur ungur í dag
Hann er 26 ára'ann Nonni
Hann er 26 ára í dag
*klapp* klapp* *klapp*

Já þetta var nú hressandi, að syngja afmælissönginn í góða veðrinu.
En ég man þá tíð eins og það hafi verið í gær, 22.nóvember 1980 í brjáluðu veðri og mamma var að reyna að komast í Keflavík eins og það hét í gamla daga til að fara inn á sjúkrahús, mikið var nú vont veður, skafrenningur og norðan suddi. En sem betur fer er veðrið ekki eins slæmt í dag.

En hvernig líst ykkur á það að syngja afmælissönginn einu sinni enn?
Já flott, þá skulum við enda á afmælissönginum.

Hann á ammælí da
hann á amælí da
hann á amæli 'annonni
hann á ammlí da

Húrra, húrra húrra... öskraði Pála Púrra (já smjattpattarnir komu í veisluna)

Njótið dagsins
Jón Bergmann

posted by Nonni & Beta 12:32




fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Nýtt lúkk
Eins og glöggir lesendur sjá vorum við aðeins og lífga upp á síðuna okkar, skipta út myndunum hérna á síðunni og merkja við hvaða mynd þýðir hvað. Sem gerir fólk auðveldara fyrir að finna það sem fólk er að leita að. Því við vitum að fólk hefur verið að leita eins og lítill krakki í páskaeggjaleit af gestabókinni... og það er kominn tími til að fólk fari að skrifa í hana, því núna er ekkert mál að finna hana!

En það er ekki bara heimasíðan sem hefur fengið nýtt "facelift", heldur hann Nonni líka, en hann var að leika sér í hinu gríðarlega hættulega sporti sem flestir kalla fótbolta. Honum tókst með glæsibrag að skalla í hausinn á einhverjum sem hann þekkti ekki baun og fékk þennan myndarlega skurð á ennið, svo úr blæddi talsvert. Eftir rúmlega hálftíma bið eftir leigubíl var hann sendir á bráðamóttökuna hérna og þurfti að sauma 8 spor. Já heil 8 spor frá augabrún og eitthvað uppeftir enninu. Huggulegt. En Nonni fékk ekki ósk sína uppfyllta... sárið er ekki eins og eldingin á enninu á Harry Potter. Það hefði verið aðeins meira töff (eða ekki!)
En allavega þá var gærdagurinn ekki alveg þessi hefðbundni dagur... vakna - skóli - borða - TV - sofa.

En við erum spennt að fylgjast með gestabókinni, endilega skrifið.

Bless í bili
Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 08:46