mánudagur, september 25, 2006
Litla gula trillan
Saga úr daglega lífinu
Þegar við fórum fyrir síðustu jól að elta ameríska drauminn geymdum við nánast allt dótið okkur hjá Ævari og Gerði, íslensku fólki sem bjó hérna í Þrándheimi. Í vor fengum við fréttir frá þeim þar sem þau voru að flytja heim til Íslands. Þar sem við vorum í San Diego að njóta veðurblíðunnar þar gátum við ekkert í þessu gert þaðan. Þannig að Ævar kippti í nokkra spotta og kom dótinu okkar fyrir hjá öðru íslensku fólki sem býr hérna í Þrándheimi, þeim Magga og Lóu.

Svo þegar við komum aftur til Þrándheims vorum við auðvitað mjög spennt að komast í dótið okkur, koma okkur fyrir í nýju íbúðinni okkar. Þegar við vorum búin að taka allt dótið úr bílskúrnum hjá Magga og Lóu tókum við eftir því að trillan okkar var hvergi sjáanleg. En hún var einmitt einstaklega hentug til að... einmitt trilla dóti á milli staða í staðinn fyrir að burðast með þá. En við hugsuðum með okkur að sennilega hafi Ævar (sem var rosalega hrifinn af trillunni) óvart tekið trilluna með til Íslands, við vorum alveg tilbúin að fyrirgefa honum, þar sem hann var að geyma allt dótið okkar í kjallaranum sínum. En við komum nú samt öllu "hinu" dótinu í nýju íbúðina án mikilla vanræða.

En við eigum líka þvottavél. Hún var geymd hjá vinafólki okkar sem á heima eiginlega í næsta húsi, á þriðju hæð. Þar er engin lyfta, bara þröngur stigi. Þar sem hvorugt okkar hefur verið alltof dugleg að taka lýsið okkar þá sárlega vantaði okkur trillu til að koma þvottavélinni á réttan stað, í nýju íbúðina okkar. Þannig að við dóum ekki ráðalaus, fórum og keyptum aðra trillu alveg eins og þá fyrri. Þannig að hlunkurinn/þvottavélin komst á leiðarenda.

Við vorum ekkert mikið búin að vera velta því fyrir okkur hvar greyið trillan okkar væri uppkomin, þangað til á aðalfundi Íslendingafélagsins Kjartans. Á fundinum voru allir helstu Íslendingar Þrándheims mættir til að aðalfundast og fleira. Þegar við vorum að fara að byrja á fundinum, segir Hildur, gjaldkeri "Hver á eiginlega gula trillu sem er heima hjá mér?" Andlitið á okkur verður eins og kemur á fólki sem heyrir að frændi þeirra sem fór í berjamó fyrir 5 árum fannst óvart í Hagkaup blár í kringum munninn eftir að hafa verið að háma í sig bláber.... við vorum sem sagt rosalega ánægð. Við búin að hugsa með okkur að trillan sé bara búin að vera einhvers staðar útí hinum stóra heimi, en hún var þá bara eiginlega í bakgarðinum hjá okkur. En trillan var sem sagt ekki búin að sitja auðum höndum.

Þegar Ævar flutti heim, voru aðrir Íslendingar hérna, Fjalar og Dagný, sem keyptu þvottavélina af honum, en þar sem þau gat ekki tekið við þvottavélinni strax skildi Ævar trilluna eftir með þvottavélinni svo þau gætu nú komið henni heim auðveldar. Svo þegar Fjalar er búinn að flytja sína þvottavél þá þurfa Stefán og Hildur (gjaldkeri) að flytja þvottavélina sína og Fjalar lánar þeim trilluna. Ekki nóg með það heldur fékk Jóhann trilluna lánaða til að flytja þvottavélina sína.
Svona gerist þegar maður tekur augun aðeins af trillunni sinni... hún stingur af og flytur 3 ókunnugar þvottavélar.

Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 21:02




sunnudagur, september 17, 2006
Fyrsta alvöru bloggið á þessu skólaári
Síðasta skólaárið okkur hérna í Þrándheimi, það er alveg ótrúlegt að við séum að verða búin með þetta nám. Bara ár eftir! Eftir það myndi einhver segja að alvara lífsins taki við. Fara að vinna, þá loksins fær maður að finna fyrir því hvernig það er vera útivinnandi en ekki í skóla. En áður en við förum að hugsa of langt fram í tímann verðum við að komast yfir síðasta þröskuldinn, lokaverkefnin okkar.

Fyrir áramót verður skólinn hjá okkur þannig að við erum í einu "venjulegu" fagi, 2-3 minni fögum og svo stærra verkefni sem er nokkurs konar inngangur í lokaverkefnin okkar. Venjulega fagið er í raun ekkert venjulegt fag því að þetta fag á ekki að vera neitt tengt náminu. Heldur er þetta ætlast til þess að við séum að víkka út sjóndeildarhringinn okkar... eða eitthvað álíka viturlegt :D Sem svokallað "ikke-teknisk" fag völdum við bæði "Læknisfræði fyrir ekki læknisfræðinema" þar sem við erum að læra um kroppinn okkar. Nokkuð spennandi bara.
Fyrir utan það erum við á fullu í deildunum okkar sitt í hvoru lagi.

Skelfilegt hvað maður er orðinn ryðgaður í svona skrifum, lyklaborðið nær varla andanum eftir allt þetta puð... einu takkarnir sem eru í einhverju formi eru örvatakkarnir og músatakkarnir.

p.s. hafiði séð takkaskó? ýtið hérna

Kveðjur frá útlöndum
Nonni útlendingur og Elísabet útlendingur

posted by Nonni & Beta 00:51




fimmtudagur, september 07, 2006

Við erum að hugsa til ykkar, elsku Bryndís Eva, Bebba og Hjörleifur.
Guð veri með ykkur.

posted by Nonni & Beta 11:29




sunnudagur, september 03, 2006
VÁ! Loksins!
Það er komin alveg rosalega langt síðan við skrifuðum hérna inn síðast. Ætli það sé ekki bara auðveldast að láta eins og við skrifuðum bara í gær og þykjast eins og ekkert hafi gerst síðan síðast, en það er alls ekki málið. Já við fórum á Madonnu tónleika eins og við sögðumst ætla að gera... það eru rúmlega 3 mánuðir síðan. Við kláruðum önnina í San Diego, vorum þar fram í miðjan júní og það var alveg frábært, langar rosalega til að fara þangað aftur. Þá sem ferðamenn og njóta þess sem ferðamennirnir gera þarna, fara í Sea World og fleira.

Svo vorum við heima á Íslandi í sumar að vinna. Það gekk sinn vanagang. Mjög fínt hjá okkur báðum í vinnunni.

Við erum komin aftur til Noregs þar sem við erum að byrja á síðasta árinu okkar hérna í Þrándheimi.

Það vantar alveg rosalega mikið hérna inná milli en það verður bara að hafa það í bili.

Þetta er amk eitthvað. Reynum að vera aðeins duglegri að skrifa hérna inn... sérstaklega fyrir þig Bebba ;)
Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 20:23