mánudagur, maí 22, 2006
da da da Vinci Helgin hefur verið notuð til að slaka örlítið á, því að það hefur verið nokkuð mikið að gera hjá okkur undanfarið og þess vegna gripum við tækifærið og skelltum okkur í bíó til að sjá da Vinci lykilinn. Hún var bara mjög góð, enda sagan góð, það var nú varla hægt að klúðra þessu. En það hefur allt verið á öðrum endanum hérna út af myndinni, allir að keppast um að hata hana eða elska hana. Einhverju fólki hefur verið bannað af söfnuðinum sínum að fara á myndina. Hasarinn í kringum myndina er svipaður og þegar Passion of the Christ sem Mel Gibson gerði var sýnd. Nema þetta er skáldsaga!! Þetta er eitthvað sem einhver kall út í bæ skrifaði um mann sem er ekki til, sem hitti konu sem er ekki til, en gerist á stað sem er til.
Svo á þriðjudaginn erum við að fara á tónleika, já við erum að fara á tónleika með Madonnu... aftur! Það mætti aldeilis halda að við værum stærstu aðdáendur hennar. Já já eigum við ekki að segja að við séum það bara :)
bæ jón og elísabet
posted by Nonni & Beta 05:15
|
miðvikudagur, maí 17, 2006
Gratulerer med dagen Til hamingju með þjóðhátíðardaginn Norðmenn. Já þeir eiga allir afmæli í dag frændur okkar Norðmenn.
Héðan s(k)ólinni er allt fínt að frétta, en við höfum haft lítinn tíma til að njóta veðurblíðunnar eins og svo oft áður vegna verkefna og anna í skólanum. Við erum ekkert að kvarta yfir ástandinu, væri bara huggulegt að geta hangið við sundlaugina allan daginn, alla daga. Nema þegar það er skýjað og fara þá að versla en svoleiðis er lífið ekki. En með hækkandi sól kemur Eurovision, og eilíf Nótt, Silvía Nótt þ.e.a.s. En skvísan er að gera allt "spinnegal" sem er bara fínt, meira að segja ljúfmennin frá Finnlandi eru eins og lömb í frystikistu við hliðina á henni þvílík eru lætin í henni. Vonandi verður hún ekki Rómaríó kærastanum sínum til skammar með þessum hamagangi.
Langaði bara að deila þessu með ykkur.
þessu ykkur
smá stærðfræðiþraut
kær kveðja Jón ón n n og g g Elísabet ísabet abet bet et et humm... bergmálar svona hérna?
posted by Nonni & Beta 03:48
|
laugardagur, maí 13, 2006
Brumm brumm...

Hann á afmæli í dag! Hann á afmæli í dag! Hann á afmæli hann Ragnar litli bróðir... hann á afmæli í dag!
Elsku Ragnar til hamingju með daginn og farðu nú varlega í umferðinni.. tala nú ekki um ykkur hin. Kappinn var nefnilega að fá bílpróf í dag!!
Njóttu dagsins í dag, vildi að við gætum verið þarna hjá þér og farið með þér á rúntinn! En við erum þarna í huganum!!
Kossar og knús frá San Diego Elísabet stóra systir og Nonni Sponni.
posted by Nonni & Beta 18:47
|
fimmtudagur, maí 11, 2006
Skóli skóli skóli... o.s.frv. Undanfarna daga og vikur hefur verið alveg þokkalega mikið að gera hjá okkur. Langar eiginlega að segja eitthvað merkilegt en það er eiginlega ekkert að frétta. Það er bara allt fínt að frétta, erum orðin tvö aftur, eftir að mamma fór heim síðasta laugardag. Verðum eiginlega að viðurkenna að það er hálftómt hérna núna, engin sem tekur á móti manni eftir langan skóladag.
... ef okkur dettur eitthvað spennandi í hug skulum við reyna að skrifa eitthvað hérna
Kveðja frá stórbloggurunum Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 06:40
|
|