sunnudagur, mars 26, 2006
Spring Break
Við erum komin í frí loksins, Nonni fór í próf á föstudaginn og eftir það vorum við komin í rúmlega vikufrí. Fórum á föstudaginn í mat til kennarans okkar, hann var búinn að bjóða öllum bekknum í mat heim til sín, pítsur og pasta. Við fórum eftir prófið hans Nonna sem var búið klukkan 6 um kvöldið og brunuðum heim til hans, og við mættum alltof seint að því er við héldum. En við vorum einu krakkarnir sem vorum mættir. Og við vorum einu krakkarnir sem mættum til hans. Allir hinir eitthvað svo uppteknir. En það var alveg rosalega fínt, vorum bara að spjalla við hann og vini hans, hann var nefnilega svo séður að láta líka vini sína koma... svona just in case að engin kæmi.
Svo í gær laugardag fórum við niður í miðbæ La Jolla að skoða, vorum ekkert búin að fara þarna bara til að skoða. Alveg rosalega flott þarna niðri í bæ. Sáum fullt af dýrum, pelikana, íkorna, máva, fólk, seli og maríubjöllu. Maríubjallan lenti á augnhárunum hennar Elísabetar, þannig að hún sá hana í nærmynd.
Eftir skoðunarferðina fórum við heim þar sem það var glampandi sól og hiti ætluðum við heim í sólbað að slaka á. Nema þegar við vorum komin heim þá var orðið pínu skýjað og ekkert spennandi að fara í sólbað án sólar þá fórum við bara í bíó. Algjört letilíf þessa dagana.

Það sem er á planinu í fríinu er m.a. slaka á og njóta lífsins, fara í Magic Mountian, fara á ströndina, fara á brimbretti (surfin' dude) og skoða okkur um hérna í San Diego og nágrenni.

Frábært að vera svona í fríi.

Gorma Brots kveðjur (Spring Break greetings)
Nonni dude og Elísabet dudette

posted by Nonni & Beta 21:33




sunnudagur, mars 19, 2006
Gestirnar komnir og farnir
Við viljum byrja á því að þakka Berglindi og Davíði innilega fyrir komuna til okkar, það var alveg rosalega gaman að hafa ykkur. Bara leiðinlegt að það skildi ekki vera sól allan tímann.
Síðustu vikur er búnar að vera alveg troðfullar af dagskrá, í fyrsta lagi vorum á fullu að undirbúa það að gestirnir kæmu með því að læra eins mikið og við gætum fram í tímann og svo þegar þau voru hérna þá vorum reyndum við að gera sem mest. Fórum meðal annars í hinn heimsfræga San Diego Zoo. Það var frábært, sluppum við rigninguna sem var spáð. Sáum m.a. pínulitla risapöndu, fíla sem önguðu, kvefaðan gíraffa, magnaðan apa og dádýr, öðruvísi dádýr, sjaldgæf dádýr, Afrísk dádýr, Asísk dádýr, dásamleg dádýr og alla hina ættingjana hans Bamba.
Svo fórum við til Tijuana í Mexikó, þegar við vorum að fara yfir Mexiko landamærin var ekkert eftirlit, hefðum getar farið til Mexikó með hvað sem er, en það sama var ekki uppá teningnum þegar við vorum að fara til baka þá var um 3ja tíma biðröð fyrir gangandi vegfarendur. En alla vega, þegar við komum yfir til Mexikó þá tók maður greinilega eftir því að þetta var ekki sama landið og fyrirheitna landið, USA. Við vorum eiginlega pínulítið smeik þar sem það voru sölumenn út um allt að reyna að selja okkur drasl við höfðum engin not fyrir. En maður venst því að fólk er bara svona ágengt. En tókum fljótlega eftir því að ef maður tekur þetta ekkert of alvarlega, þá er þetta allt í lagi. Vorum mjög ánægð að finna Hard Rock Cafe, vorum ekki að treysta þessum götueldhúsum. En þetta var mögnuð lífsreynsla að vera þarna í Tijuana.
Svo tókum við einn dag í verslunarleiðangur, hann var bara eins og flestir verslunarleiðangrar, maður fer tómhentur og kemur til bara drekkhlaðinn.
Á mánudeginum var besta veðrið þessa helgina og þá vorum við í skólanum allan daginn en Bergling og Davíð létu sér ekki leiðast og fóru í Sea World, og komu svo vel útitekin heim (sólbrennd). Svo um kvöldið var grillað og spilað.

Það var alveg ótrúlega gaman hjá okkur um síðustu helgi en svo tók alvaran við því vikan sem leið var síðasta skólavikan fyrir prófin. Það var líka alveg ótrúlega mikið að gera í vikunni. Fullt af verkefnum og fleira. En þetta reddaðist nú allt saman.
Elísabet er komin í frí, Spring Break, en Nonni á ennþá eftir 1 próf sem hann fer í á föstudaginn næsta og eftir það verður komið alvöru Spring Break.

Við hlökkum rosalega til að komast í frí

Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 20:52




fimmtudagur, mars 02, 2006
Koma gestanna undirbúin
Þar sem við eigum von á gestum í næstu viku erum við þegar farin að undirbúa komu þeirra. Undirbúningurinn er þó aðallega þannig að við ætluðum að reyna að gera sem allra mest í skólanum fram í tímann. Eigum að vera að skila verkefnum og ritgerðum á meðan gestirnir eru og við erum farin að undirbúa þær á fullu. Þó að við getum auðvitað ekki gert allt fram í tímann svo sem eins og að taka próf eða fara í fyrirlestra þá er um að gera að reyna að nýta tímann sem best þegar loksins við fáum gesti hingað til okkar.
Það verður líka alveg magnað að fá gesti, erum búin að vera að skoða hvað hægt er að gera með þeim, hvernig best sé að nýta tímann og peningana. Svona það helsta sem er á dagskránni er auðvitað eins og í flestum fríum til heitu landanna, versla og vera úti í sólinni og svo auðvitað að gera það sem ekki er hægt að gera á Íslandi.
En við skulum bara láta þetta duga í bili því við verðum að fara í skólann núna og reyna að gera eitthvað.

Elísabet og Nonni

posted by Nonni & Beta 23:25




miðvikudagur, mars 01, 2006
Já það rignir líka í San Diego
Mikið gekk á hérna í San Diego í gær og í dag og þetta voru svo sannarlega jólin hjá veðurfræðingum því að það var von á veðri hérna, eitthvað að gerast á radarskjánum. Svo kom rigningin... hellidemba. Svona átti þetta að vera í einhvern tíma en svo seinnipartinn var sólin komin aftur allt orðið þurrt stuttu seinna.

Það er svo sannarlega farið að styttast í að við fáum gesti, það er ekki nema rúm vika þar til Berglind og Davíð koma til okkar. Það verður alveg magnað getum við sagt ykkur lesendur góðir. Og við verður meira eða minna með gesti eftir það.

Biðjum að heilsa ykkur
Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 05:06