mánudagur, febrúar 27, 2006
Klukkuð!!!
Jæja þá er Elísabet Leifs búin að klukka mig, ég hélt nú að við myndum sleppa við þessa vitleysu, þar sem enginn var ennþá búin að klukka okkur. En hérna koma nokkrar tilgangslausar upplýsingar um mig.

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur....

- Dirty Dancing
- Pretty Woman
- var ég búin að segja Dirty Dancing
- svo man ég ekki eftir fleirri myndum sem ég get horft á aftur og aftur. Horfi yfirleitt bara á myndir einu sinni.

4 staðir sem ég hef búið á:

-Keflavík: Ásabrautinni, Heiðarhvammi og Norðurvöllum
-Þrándheimi, Noregi: Norrøna hotel, Singsakken Bakken og Christian Frederiksgate
-San Diego, California, USA: Fiore Terrace

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

* má maður bara nefna 4 þætti!!!
- Extreme makeover: home edition
- Prison break
- CSI
- Friends
- Desperate housewife
- 24
- Scrubs
- My name is Earl
- American Idol
- Alias
- CSI: NY
- Sex and the city
- Survivor
- Lost
- Amazing Race
- O.C.
* Þetta er nú ekki í neinni sérstakri röð...

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

- Norðurlöndin: Danmörk, Svíþjóð, Noregur
- London, Edenborg, Dublin
- USA: Florida, New York, San Diego, Phoenix, Grand Canyon
- Ríó de Janeiro í Brasilíu

4 heimasíður sem ég skoða daglega:

- http://bebbaoghjolli.blogspot.com/
- http://nonniogbeta.blogspot.com/
- http://www.mbl.is
- http://www.vg.no

4 matarkyns sem ég held uppá:

-áranótamaturinn, kalkúnn og stuffinginn hennar mömmu
-kjötsúpan hennar mömmu
-lambalæri og hryggur
-mexíkanskur matur, núna finnst mér Taco Bell rosalega gott.
-tómatakjúklingur a la Þórný

4 bækur sem ég les oft:

- Skólabækurnar
- annars les ég aðrar bækur ekki oft. Nóg að lesa hverja bók bara einu sinni

4 staðir sem ég vildi vera á núna:

-Heima hjá fjöskyldunni og vinum
-Bara að ferðast til einhverra staða sem ég hef ekki enn heimsótt
-Sakna nú pínu lítið allra í Noregi
-Annars líður mér alveg frábærlega hérna í San Diego með honum Nonna mínum ;)

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

-IGS innritun og hreinsun --> mjög fín störf, sérstaklega hreinsunin
-Tækniþjónusta SÁ --> Frábær vinna.
-Fimleikadeild Keflavíkur sem þjálfari --> gefandi og skemmtilegt starf, sakna þess stundum að vera ekki enn að þjálfa í íþróttahúsinu
- Heiðarskóli sem forfallakennari --> ekki fyrir mig

4 bloggarar sem ég klukka:

- Nonni sponni
- Berglind
- Atli og Sigurrós
- Anna Birna

posted by Nonni & Beta 06:49




sunnudagur, febrúar 26, 2006
Vikan sem leið
Hvað erum við búin að vera að bralla þessa dagana, það kemur ykkur ekkert við :)
Jú auðvitað hafið þið fullan rétt á því að vita allt hvað er að gerast hjá okkur hérna, annað væri auðvitað bara dónaskapur.
Við erum búin að vera meira eða minna í skólanum þessa vikuna, held samt að þetta hafi verið vikan sem var lognið á undan storminum sem er framundan því að það var í fyrsta lagi frí á mánudaginn út af Forsetadeginum, svo gekk vikan nokkuð þægilega fyrir sig, nema þá kannski eitt hópaverkefni sem Elísabet var að gera, því að hópurinn átti í smá erfiðleikum með að finna tíma og það endaði með því Elísabet var á fimmtudaginn til klukkan 3:30 um nóttina að vinna í verkefninu... ekki skemmtilegt þegar eini tíminn sem fólk getur hittst er seint um kvöld og langt fram eftir nóttu. Þó við hefðum mætt í skólannn stundvíslega klukkan 8 morguninn eftir var þreyta pínulítið farin að segja til sín hjá einhverjum, enda ekkert skrítið.
Helgin verður sennilega bara í rólegri kantinum, þurfum bæði að læra talsvert.
og fyrir ykkur sem hafir ekki skoðað myndirnar þá getir þið skoðað þær hérna.

Ajðevk
Nnamgreb Nój go Tebasíle

posted by Nonni & Beta 19:59




þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Nýjar myndir
Jæja loksins setjum við inn nokkrar myndir fyrir ykkur. Endilega skoðið þetta og segið hvað ykkur finnst. Við settum inn myndir frá því að Anna Birna frænka hans Nonna var í heimsókn hjá okkur í Þrándheimi, svo eru myndir frá áramótunum í NY, fyrstu vikunum í San Diego (ATH. það er vetur hérna!) og svo frá helgarferðinni okkar til Grand Canyon og Monument Valley. Svo verðum við að finna myndir af íbúðinni og sundlauginni okkar við tækifæri. ENJOY!!

Elísabet og Nonni myndasmiðir.

posted by Nonni & Beta 18:56




mánudagur, febrúar 20, 2006
Frábær ferðahelgi.
Já við erum aldeilis búin að ferðast um helgina. Við leigðum okkur bíl á föstudaginn og fljótlega upp úr hádegi lögðum við af stað í ferðalag. Fyrst var ferðinni heitið til Grand Canyon eða Miklagljúfurs, eitt af sjö náttúrulegum undrum veraldar. Og það þriðja sem við sjáum. Bara fjögur eftir.
En þegar við vorum komin langleiðina til Los Angeles lentum við í ansi mikilli umferð enda vorum við þarna um 5 á föstudegi, en þegar við vorum komin út úr borginni var umferðin skárri og við keyrðum langleiðina til Grand Canyon, gistum í bæ sem heitir Williams... hann er sennilega ekki mikið merkilegur, en við erum allavega búin að koma þangað.
Svo morguninn eftir fórum við snemma af stað og ferðinni var heitið til Grand Canyon, og Miklagljúfur stóð aldeilis undir væntingum. Ótrúlega stórt og alveg magnað hvernig ein á getur skafið svona rosalega mikið úr landinu til að búa til þessa rosalegu holu. Og þegar við vorum búin að skoða gljúfrið frá nokkrum sjónarhornum héldum við áfram.
Núna var ferðinni heitið til Monument Valley, staður sem kannski ekki allir vita hvað heitir en nánast allir hafa séð á myndum eða í bíómyndum, örugglega einhverjir sem muna eftir því þegar Forest Gump var að hlaupa í eyðimörkinni og hætti að hlaupa og sagði "I think I'll go home now." Við vorum þarna rétt fyrir sólsetur og náðum sólsetrinu þarna, sem var ólýsanlegt, ótrúlegt að vera þarna í miðju indjánalandi að horfa á landslagið. Þegar það var orðið dimmt í Monument Valley fórum við að keyra aftur til baka, keyrðum til Flagstaff. Sváfum í Flagstaff sem hann liggur við hinn sögulega Route 66. Morguninn eftir fórum við snemma af stað og héldum suður á bóginn til að skoða Eldfuglinn, Phoenix. Stoppuðum aðeins í Phoenix en gerðum svo sem ekkert merkilegt, heldur héldum áfram og þá bara heim á leið.
Alveg magnað að keyra í gegnum eyðimörkina þar sem við keyrðum frá Flagstaff þar sem allt var skógi vaxið og svo eftir því sem við keyrðum sunnan þá var breyttust trén í kaktusa. Þessir kaktusar verða alveg ótrúlega stórir verða alveg hátt í 10m á hæð.
Og þegar við vorum að nálgast San Diego keyrðum við bara inn í alvöru eyðimörk, sandöldur og ekki eitt stingandi strá í kring. Þetta var samt ekki eins og þegar maður hugsar til Sahara, maður skríðandi í sandinum og sér ískalda kók í fjarska heldur voru fjórhjól og svoleiðis tryllitæki í hundruða tali að keyra upp og niður sandöldurnar, örugglega þvílíkt stuð að prófa þetta.
Svo hér erum við nú komin aftur heim á sunnudagskvöldi, loksins komin heim, jafnvel þó þetta hafi bara verið ein helgi þá er alltaf gott að koma heim og sofa með koddann sinn.

Ferðakveðjur
Francisco Vásquez de Coronado og Marcos de Niza

posted by Nonni & Beta 09:50




sunnudagur, febrúar 12, 2006
Helgarfrí
Eftir frekar erfiða viku þá erum við búin að taka því frekar rólega núna um helgina, í gær, laugardag fórum við í göngutúr hérna um hverfið í góða veðrinu og eftir stuttan spöl vorum við bara allt í einu komin í verslunarmiðstöðina hérna, við vorum rétt búin að labba í 10mín. Við vorum eiginlega svolítið hissa hvað við vorum snögg að labba þangað, en á hinn bóginn þá er alltaf gaman að vita af því að maður er ekki nema örskamma stund að komast í búðir :)
En í þetta sinn var ekki mikið verslað, fengum okkar að borða og gengum svo heim á leið. Enda var kominn tími til að skella sér niður að sundlauginni og slaka aðeins á. Gærkvöldið fór svo bara í það að læra, vorum að skrifa ritgerð, getum ekki neitað því að það er ekkert rosalega gaman að vera að skrifa ritgerð á laugardagkvöldi í staðinn fyrir að fara í bíó eða gera eitthvað annað spennandi.
En vegna þess að við vorum búin að klára megnið af ritgerðinni þá gátum við leyft okkur að fara snemma í morgun að ná besta stæðinu við laugina og láta sólina geisla á mann brúnku.

Þangað til næst... verið góð við dýrin.

Thanx
Djonn and Elizabeth
have a good one y'all

posted by Nonni & Beta 23:07




fimmtudagur, febrúar 09, 2006
Ha!? Er komið sumar?
Jæja það er ekkert svo leiðinlegt að vera í San Diego þessa síðustu daga, þar sem veðrið hefur verið alveg rosalega gott. Í dag fór hitinn yfir 30°C sem er talsvert meira en það sem Íslendingar eiga að venjast í febrúar.
En því miður erum við ekki í fríi hérna, heldur í skóla, og njótum blíðunnar ekki nægilega þegar úti er svona gott veður. Og miðvikudagar eru þeir dagar hjá okkur þar sem við erum í skólanum hvað lengst og því enn minni tími til að njóta þess að láta geisla sólarinnar leika sér að breyta bleikum lit okkar í brúnan. Auðvitað hefðum við alveg viljað að það væri sól amk til svona 7 um kvöldið þannig að við hefðum einhvern smá tíma til að stökkva út á speedo skýlunni og bikini-inu, löðrandi í sólarolíu og láta sólina steikja okkur. Kannski við séum að ætlast til of mikils af almættinu.

... eitt svolítið sniðugt... Elísabet er örlítið sólbrennd á ristinni, samt eiginlega ekki alveg brennd... meira svona ristuð... hahaha... ristuð á ristinni!
... eitt svolítið merkilegt... við sáum eðlu við sundlaugina!

Kveðja Sandy Ego

posted by Nonni & Beta 02:34