þriðjudagur, janúar 31, 2006
Kæru vinir
Fimmtudaginn 5. maí, 2005, kom stúlkubarn í heiminn. Hún fæddist með skollitað hár og dökkgrá augu. Fæðingin gekk vel og á þeirri stundu fannst foreldrum hennar eins og ekkert væri til nema þessi litla prinsessa.Þessi litla undurfagra stúlka þarf nú á öllum þínum styrk að halda. Hún heitir Bryndís Eva og er að verða níu mánaða gömul. Foreldrar hennar eru frá Suðurnesjunum og heita þau Hjörleifur Már og Bergþóra Ólöf.
Í byrjun desember byrjaði hún að fá krampaköst sem engin lyf dugðu til að ráða niðurlögum á. Henni var haldið sofandi um tíma og síðan þá hefur verið beðið eftir því að hún vakni. Þessi litla snót hefur farið í fjölmargar rannsóknir en ekkert hefur enn fundist að henni. Lyfin sem þarf til að halda krömpunum niðri eru of sterk til að hún haldi vöku.
Fjöldi fólks hefur fylgst með líðan Bryndísar Evu á vefdagbók foreldra hennar en erfitt er að sitja aðgerðalaus hjá og finnast máttvana. Við höfum beðið fyrir henni og hugsað hlýlega til hennar en betur má en duga skal, samstaða á erfiðum tímum getur gert kraftaverk. Þess vegna þurfum við á þér að halda. Við viljum biðja þig að sýna samhug í verki og koma á styrktartónleika sem haldnir verða í hennar nafni. Við ætlum að koma saman og hlusta á fallega tónlist og um leið senda henni og foreldrum hennar allan þann styrk, kærleik og orku sem þau þurfa á að halda. Hægt er að skoða sögu Bryndísar Evu á heimasíðu foreldra hennar: www.bebbaoghjolli.blogspot.com
Tónleikarnir verða haldnir á Ránni fimmtudaginn 2. febrúar kl. 20:00. Aðgangseyrir eru 500/- kr. en frjáls framlög eru vel þegin. Fram koma: Hanna Björg, Hlynur Vals, Matti Óla, Óli Þór, Rúnar Júlíusson, Svavar Knútur og Tabula Rasa. Styrktarreikningur hennar er í Sparisjóðnum í Keflavík og er hann: 1109-05-410900 og kennitalan er 290681-5889.
Elsku Bebba, Hjölli og Bryndís Eva. Við hugsum stöðugt til ykkar og sendum ykkur allan þann styrk sem við eigum. Vonandi fer þetta nú að lagast hjá litlu prinsessunni.
Ykkar vinir Nonni og Elísabet
p.s fengum bæði greinina og myndina lánaða af öðrum bloggsíðum, vonandi er það í lagi :)
posted by Nonni & Beta 23:23
|
laugardagur, janúar 28, 2006
Allt að smella. Síðan við komum til San Diego höfum við haft í alveg rosalega miklu að snúa. Alltaf eitthvað sem þarf að redda. Skólinn, bíll, íbúðin og ýmislegt fleira en núna lítur út fyrir að þetta sé allt að komast á réttan kjöl. Komin með þau húsgögnin sem okkur finnst við þurfa, rúm, sófa, borð og stóla. Hingað til höfum við verið að redda hinu og þessu alltaf þegar við erum ekki í skólanum og það var bara í fyrsta skipti í gær sem Elísabet var bara heima að njóta þess að vera hérna, búin að skila verkefnum í skólanum og engin verkefni í augnablikinu og þegar þessi orð eru rituð erum við komin í helgarfrí og helgin er ekki kjaftfull af dagskrá. Aldrei að vita nema við liggjum bara í leti eitthvað um helgina.
Um helgina verður eitthvað rosalegt golfmót hérna í borginni, ekkert svo langt frá okkur og meðal golfara sem verða keppa í mótinu er Tiger Woods. Já hann er hérna kappinn.
Held að þetta verði bara að duga ég er alveg að sofna. Kveðjur frá sunny California.
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 06:18
|
miðvikudagur, janúar 25, 2006
Stundum er gott að vera Íslendingur :) Síðustu dagar hafa verið að mestu fullir hjá okkur þar sem við erum búin að vera að koma okkur fyrir, erum á síðustu dögum búin að leigja pallbíl í einn dag og svo erum við núna með van á leigu. En það hefur alveg borgað sig því að við erum búin að redda sófa, sófaborði, sjónvarpsskáp og rosa flottu eldhúsborði og stólum. Allt þetta var keypt notað þar sem við erum svo rosalega hagsýn :) Elísabet er búin að liggja yfir http://sandiego.craigslist.org og uppúr krafsinu erum við búin að finna rosalega góða díla. En hvernig við fengum eldhúsborðið og stólana er svaka saga. Elísabet sá þetta líka rosalega flotta eldhúsborð og stóla í stíl. Og við sendum email til að tékka hvort búið væri að selja settið. Þegar við vorum búin að gefa upp vonina og héldum að þetta væri örugglega selt en þegar Nonni var á bílaleigunni nýbúinn að skila pallbílnum sem við leigðum til að flytja sófasettið sem við keyptum þá hringir síminn og verið að bjóða okkur að kaupa settið. En þar sem við vorum búin að skila pallbílnum sem við vorum með fórum við bara á Escortinum okkar í von um að koma amk einhverju inn og fara þá bara fleiri ferðir að sækja dótið. En þegar við vorum komin á staðinn mætti okkur heil fjölskylda til að taka á móti okkur og selja okkur góssið, borðið og stólana. Við komumst að því að dóttirin átti borðið og stólana og pabbinn og eitthvað vinafólk þeirra voru þarna líka til að passa það að einhverjir ribbaldar og terroristar væru ekki að kaupa dótið. Í fyrsta lagi þá komst ekkert í bílinn, ekki einu sinni einn stóllinn þannig að stelpan bauðst þá til að setja þetta í jeppann sinn og skutla þessu til okkar þar sem við vorum Íslendingar og vorum svona nýkomin í bæinn, greyin. Svo þegar okkur tókst ekki að koma borðinu inn í jeppann hjá stelpunni þá fengum við að sækja þetta í dag, þriðjudag. Þá sagði pabbinn bara uppúr þurru að hann myndi kaupa borðið og stólana af dóttur sinni og gefa okkur það sem svona "Velkomin til San Diego" gjöf. Sem sagt við fengum alveg nýtt eldhúsborð og stóla gefins bara af því að við vorum ekki ribbaldar eða eitthvað svoleiðis. Já þetta var saga úr daglega lífinu.
Kveðja í bili Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 06:40
|
mánudagur, janúar 16, 2006
Flutt inn í íbúðina okkar Loksins erum við komin með íbúðina okkar, erum rosalega ánægð með hana, erum reyndar ekki komin með nein húsögn ennþá fyrir utan rúm sem við keyptum í gær, þannig að við erum með dýnu á gólfinu í stofunni og sitjum á gólfinu og borðum. Rosalega kósý finnst okkur en vonandi finnum við einhver húsgögn á næstunni þannig að við getum lært annars staðar en á gólfinu. Já og auðvitað erum við komin með sjónvarp :) En við urðum eiginlega að fá okkur sjónvarp strax því að við vorum búin að panta internetið og kapal fyrir sjónvarpið þannig að við erum komin með internetið loksins. Erum búin að fara hérna í sólbað hérna fyrir neðan við sundlaugina og ætluðum að fara í sund en hún er víst ekki hituð núna þannig að við fórum bara í heita pottinn í staðinn. Já þetta er alveg frábært að vera hérna. Svo er frí á morgun í skólanum hjá flestum en við förum í einn tíma þrátt fyrir það.
Kveðja Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 03:16
|
þriðjudagur, janúar 10, 2006
Fyrsti skóladagurinn Fyrsti skóladagurinn var í dag og eftir að hafa farið í skólann klukkan 8 i morgun þá fór Elísabet í sinn fyrsta tíma og Nonni stalst með henni það gekk bara alaveg ljómandi vel. Svo eftir hann fórum við í annað fag sem er eiginlega bara hópavinnufag, lítil verkefni sem verða alla önnina, verður mjög spenanndi fag. Svo eftir þann tíma var komið að Nonna að fara í sinn fyrsta tíma aleinn. En rétt áður en tíminn byrjaði þá hittum við hann Lars, einn Norðmanninn sem var með okkur í skólanum í Noregi, og svo skemmtilega vill til að hann ætlar að taka sama fag og Nonni þannig að þeir fóru saman í tíma nema bara það eina sem beið þeirra var miði á hurðinni sem lét þá vita að tímarnir byrja á morgun. Þannig að við vorum í ca. 3ja tíma pásu sem við nýttum með því að fara í göngutúr með Norðmanninum um campusinn hérna og hann sýndi okkur svona það helsta sem við vorum ekki búin að sjá. Fengum okkur að borða og svoleiðis, þó að um morguninn hefðum við farið út og hitinn ekkert til að hrópa húrra yfir þá var komið alveg steikjandi hiti um hádegið. Svo rétt eftir að við vorum búin að kveðja Lars þá hittum við Frederik, hinn Norðmanninn sem við þekkjum hérna. Hverjar eru eiginlega líkurnar að hitta þá báða á sama deginum bara á röltinu á þessu risastóra svæði, alveg magnað. Svo fórum við í annað fag saman, gekk alveg þokkalega. Og síðast en ekki síst var það AutoCAD námskeið sem við tökum, þeir fyrirlestrar eru ekki í skólanum heldur eru þeir lengst frá honum, og af öllum stöðum sem þetta gat verið þá er þetta bara rétt við mótelið sem við gistum á þessa dagana. Þannig að eftir 4 tíma af AutoCAD sýnikennslu þá þurftum við bara að keyra í smástund "heim". Það var ekkert smá þægilega að komast heim loksins klukkan 10 um kvöldið eftir frekar langan skóladag.
Vonandi fáum við að vita meira um íbúðina okkar á morgun, þriðudag. Aldrei að vita nema við flytjum inn á miðvikudaginn. Mótelgistingin er ekki það allra mest spennandi við þetta ævintýri okkar hérna. Öll föt orðin skítug, sveitt og krumpuð. Svo er maður orðinn pínulítið þreyttur á því að geta ekki farið bara að versla inn, eldað eða bara farið inn í ísskáp og náð sér í eitthvað að borða eða drekka.
Kveðjur frá HOJO Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 07:13
|
laugardagur, janúar 07, 2006
Fínt að frétta úr sólinni Jæja, í dag var fyrsti dagurinn sem við höfðum einhvern frítíma í sólinni, vorum reyndar að redda einhverju í sambandi við skólann og íbúðina fram eftir degi. En svo skelltum við okkur í verslunarskoðunarferð, þar sem við erum ekki komin með íbúð ennþá og erum ekki með þvottavél og þurrkara þá er skortur á hreinum sokkum og því voru sokkar það eina sem við keyptum. Þó að við hefðum auðveldlega getað eytt helling meira. Maður getur alveg tapað sér hérna í eyðslu.
Svo á morgun vorum við að hugsa um að skella okkur út á strönd eða eitthvað svoleiðis, njóta þess að vera hérna í þessarri fallegu borg í sunny California.
sólarkveðjur frá San Diego Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 01:40
|
föstudagur, janúar 06, 2006
Fréttir frá San Diego Héðan úr sólinni (í dag 20°C) er allt ljómandi fínt að frétta. Erum búin að fara núna í skólann í 3 daga þó að við séum ekki búin að fara í neina tíma, þetta er bara búið að vera undirbúningur fyrir okkur. Við erum búin að fá bankareikning, komin með farsímanúmer. En við búum ennþá á móteli og ef allt gengur vel þá eigum við von á því að flytja í alvöru íbúð 11.jan. Erum búin að finna fína íbúð, og ef allt gengur að óskum þá verið við flutt inn á miðvikudaginn næsta. Við getum ekki beðið eftir því! Erum búin að vera eiginlega á fullu síðan við komum, fullt af einhverju sem við höfum þurft að brasa í sambandi við skólann, fá ID-kort, borga skólagjöld o.fl. Svo erum við búin að keyra um allt í leit að íbúð, örugglega búin að skoða 10-15 íbúðir og við erum rosalega sátt við það sem við fundum á endanum. Eftir að hafa verið hérna í nokkra daga höfðum við í gær loksins úthald til að fara í bíó. Fórum á Narnia og hún var bara alveg ljómandi fín.
Svo ein lítil saga úr daglega lífinu. Þannig var að í fyrradag, á þriðjudaginn vorum við heima, búin að panta mat frá mexikanska staðnum við hliðina sem sendir mat upp að dyrum og við tilbúin að fara að glápa aðeins á sjónvarpið því við nenntum ekki í bíó. Klukkan svona 7 byrjuðum við horfa á sjónvarpið og klukkan 8 átti Scrubs að byrja, ný sería af þessum frábæra þætti og við biðum spennt. Klukkan 7:58 heyrðust einhverjir skruðningar í sjónvarpinu á mótelinu, það slökknaði á því og svo byrjaði reykur að koma aftur úr því og við stukkum til tókum tækið úr sambandi og þá sáum við að lítill eldur var þarna að kraumandi inní því. Já sjónvarpið ónýtt, viðgerðarkarlinn farinn heim og við misstum af nýja Scrubs þættinum ásamt öllu hinu í sjónvarpinu þetta kvöldið.
jæja hafið það gott Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 02:09
|
miðvikudagur, janúar 04, 2006
Komin til San Diego Já já við erum komin til Sandy Ego loksins. Í þessum töluðu orðum erum við að fara í skólann í annað sinn, fórum í skólann í gær þar sem við tókum eitthvað enskupróf og kynntumst hinum útlendingunum. Eins og vera ber fóru strax að myndast hópar þarna og við tvö auðvitað einu Íslendingarnir þá smullum við ágætlega með Svíunum. Svo erum við að fara í dag að reyna að redda íbúðinni okkar... erum búin að finna rosalega fína íbúð á besta stað. Erum að fara í skólann núna Skrifum meira við tækifæri
Kveðja Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 16:30
|
|