fimmtudagur, desember 29, 2005
Á leiðinni til BNA
Eftir að hafa verið á Íslandi í rúma viku þá erum við að fara til BNA á morgun 30.des, verðum fyrstu tvær næturna í Nýju Jórvík þar sem við munum kveðja gamla árið og bjóða það nýja velkomið með því að horfa á glitrandi bolta sem mun síga niður á Tímatorgi. Svo eftir dvöl okkar í Nýju Jórvík förum við svo áfram til vesturstrandar Bandaríkja Norður Ameríku. Það verða nú aldeilis ævintýrin framundan hjá okkur.

Við erum búin að vera á milljón að undirbúa ferðina síðan við komum heim, fara hingað og þangað, redda hinu og þessu. Fórum í viðtal hjá sendiráði BNA til að fá vegabréfsáritun og þó það hafi ekki verið neitt rosalega skemmtilegt þá gekk það bara alveg ágætlega, fengum áritunina samdægurs. Allur undirbúningur ferðarinnar hefur gengið alveg ótrúlega vel, nánast ekkert ennþá sem hefur komið uppá til að tefja fyrir okkur eða valda okkur alvöru vandræðum. 7-9-13.

Svo þegar við verðum búin að koma okkur aðeins fyrir þarna í BNA þá munum við skrifa á síðuna eftir bestu getu.

Jóla-, áramóta- og ferðakveðjur
Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 12:45




þriðjudagur, desember 13, 2005
Örlítil saga úr daglega lífinu
Fyrir löngu síðan kom kassi af harðfiski til Þrándheims og endaði í búðinni sem þau Nonni og Elísabet versla alltaf. Og einn dag fljótlega eftir að harðfiskurinn kom í búðina kom þetta geðuga par og keypti einn lítinn pakka enda voru þau voða voða stolt af þessu, og sögðu hátt og snallt við harðfiskinn "Vá alíslenskur harðfiskur í Bunnpris búðinni okkar." Já, þau keyptu einn lítinn pakka af þessu lostæti dýrum dómum. 30gr af harðfiski á um 300kr, sem gera um 10.000 kr. kílóið! Svo leið og beið ekkert minnkaði af harðfisknum í búðinni í langan tíma. Enda var hann í sömu hillu og Maarud snakk sem kostar um 400 kr. kílóið! Á meðan greyið harðfiskurinn sat þarna og safnaði ryki og Maarud snakkið kom í kassavís og var rifið burt jafnóðum hlaut að koma að því að miskunnsami samverjinn kom og bjargaði harðfisknum. Enda leið honum eins og hann væri bilaður Porcshe á harðbrautinni, frábær en samt vill enginn hanga með honum. Já einn daginn kom Nonni, sem var oft búinn að labba framhjá með Maarud poka í körfunni, en þennan fallega dag greip Nonni alla pakkana af harðfisknum, 17 stykki alls og vippaði í körfuna. Harðfiskurinn tók einn loka dauðakipp af gleði og hugsaði með sér að loksins myndi einhver smyrja hann með smjöri og hama í sig. Nonni snéri sér við... hugsaði sig um... harðfiskurinn hugsaði sig um... þetta gæti ekki verið svo gott að Nonni myndi taka þá alla. En Nonni gekk rakleiðis að einum búðarstarfsmanninum og spurði "Hvað gerist ef einhver vara er komin einn dag framyfir síðasta söludag?" Sköllótti búðarstarfsmaðurinn svaraði um hæl "Þú mátt bara taka það... frítt!"
Þá glotti Nonni fór og borgaði fyrir hinar vörurnar og sagði svo "Þessir voru útrunnir." Loksins loksins vildi einhver harðfiskinn sem kippti sporðinum til í hinsta sinn áður en hann var smurður með smjöri og étinn.

posted by Nonni & Beta 12:37




mánudagur, desember 12, 2005
It's a boy!
Vildum bara óska Atli og Sigurrós innilega til hamingju með drenginn. Getum ekki beðið eftir því að sjá ykkur, litla fjölskylda.
Og allir saman nú: Húrra! Húrra! Húrra!

Kveðjur frá okkur sem brosum núna allan hringinn

posted by Nonni & Beta 13:51




sunnudagur, desember 11, 2005
Trondheim - Oslo - Keflavik City - New York - San Diego
Eins og flestir vita þá eru jólin bara handan við hornið, nokkrir dagar í viðbót og þá skellur þessi hátíð ljóss og friðar yfir okkur með hamagangi og stressi. Þannig er mál með vexti hjá okkur að Nonni er búinn með tvö erfiðustu prófin sín og á bara tvo próf eftir á meðan Elísabet er á fullu að læra undir erfið próf sem mikið þarf að undirbúa.

Síðustu dagar og vikur hafa verið viðburðaríkir. Við fengum að vita það að við verðum ekki hjá fjölskylunum okkar á áramótunum eins og við höfum alltaf verið. Heldur verðum við í New York á gamlárskvöld. Já við verðum á Times Square að telja niður. Það verður örugglega svolítið magnað og öðruvísi. Við bjuggumst ekki við því að upplifa áramót í New York, í ár amk. Ætlum að vera þar vegna þess að við verðum að vera komin í skólann á réttum tíma og að fara eftir áramót því verðmunurinn að fara rétt eftir áramót og fara fyrir áramót var rosalegur.

Svo á föstudaginn næstkomandi erum við að fara að flytja allt dótið okkar úr íbúðinni okkar góðu og setja í geymslu. Það verður örugglega svolítið undarlegt að vera í tómari íbúð í nokkra daga á meðan við verðum að lesa fyrir síðasta prófið, sem verður 20.des. Og eftir það verður ferðinni heitið heim á leið til að eyða rétt rúmri viku með fjölskyldunni.

That's all folks
Nonni og Elísabet

Svo viljum við senda baráttukveðjur til Bebbu, Hjörleifs og Bryndísar Evu. Við erum að hugsa mikið til ykkar og trúum að allt eigi eftir að ganga vel.

posted by Nonni & Beta 21:06




mánudagur, desember 05, 2005
Smá desember fréttir
Það mætti halda að við hefðum ekki verið búin að gera neitt undanfarið þar sem við erum ekkert búin að blogga neitt, en það er heldur betur annað uppá teningunum, því að við bara búin að vera á fullu í prófum og einnig erum við búin að vera vesenast í flutningum.

Bara nokkur próf í viðbót og svo erum við bara að koma heim í jólafrí og þaðan bara beint til San Diego strax eftir áramót. Spennandi tímar framundan (eftir prófin).

Meira var það ekki í bili
Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 12:03