þriðjudagur, nóvember 15, 2005
San Diego here we come! Viljum bara byrja á því að óska henni mömmu Þórný til hamingju með stórafmælið nú á dögunum. Auðvitað fannst okkur leiðinlegt að geta ekki verið á staðnum til að samfagna. En allavega... Húrra húrra húrra. Svo er Nonni alveg að fara að eiga kvartaldarafmæli, já litli snáðinn er að verða 25 ára.
Á fimmtudaginn er Elísabet að fara að sýna dans með danshóp hérna, hún er búin að vera að fara einu sinni í viku með vinkonu sinni í danstíma og núna er komið að því að sýna afraksturinn. Þetta verður á sýningu þar sem hinir ýmsu hópar skólans verða með atriði. Ótrúlega spennandi og gaman.
Já, við höfum haft í miklu meira en nóg að snúast undanfarið, það getum við sagt ykkur og þess vegna höfum við ekki verið mjög dugleg að skrifa. Það er búið að vera mjög mikið að gera í skólanum því að núna eru prófin á næsta leiti og mikið af verkefnum sem þarf að skila. Svo þegar við erum ekki búin að vera að vesenast í því sem þarf að gera í skólanum höfum við verið að vinna í því að koma okkur til San Diego í skóla eftir áramót! Við ætlum að fara til San Diego eftir áramót þar sem við verðum skiptinemar við University of California San Diego, UCSD en það er víst mjög góður skóli og ekki skemmir fyrir að hann er svona líka rosalega vel staðsettur. Hann liggur alveg við ströndina í San Diego, en fyrir ykkur sem ekki vitið hvar San Diego er, þá er það í Californiu, við Mexikó landamærin á vesturströnd USA. Við höfum heyrt að þarna sé nánast sumar allt árið, ekki leiðinlegt það. Skipulagningin á þessu ævintýri hefur einnig tekið sinn tíma, við þurfum að koma dótinu okkur fyrir einhvers staðar, og ekki getum við talað við mömmu og pabba til að geyma núna. En við erum búin að redda því sem betur fer. Þannig að við getum farið að pakka og svoleiðis. Það er bara ekkert rosalega spennandi að fara að pakka öllu dótinu niður alveg strax, ekki gaman að vera í tómri íbúð. Líka leiðinlegt að þurfa að missa íbúðina okkar, en við eigum örugglega eftir að sjá mjög eftir henni. En þó það séu gallar á gjöf Njarðar þá eru kostirnir svo mikli fleiri og stærri.
En út af San Diego ferðinni okkar þá verða þetta stystu jólin okkar heima hingað til. Komum heim 21.des og verðum að vera komin til San Diego 3.jan því þá byrjar ballið. Náum ekki einu sinni 2 vikum heima. Höfum stundum verið að ná rúmum 3 vikum í jólafrí, þannig að við verðum að borða hratt í matarboðunum í ár.
Svo vorum við víst búin að lofa að setja inn myndir hérna af ferðinni hennar Önnu Birnu en við höfum bara ekki haft tíma. Sorry. Vonandi fyrirgefurðu okkur það Anna :)
Kveðjum að sinni Sandy & Ego
p.s. Atli það Barði enginn neinn... það eru allir vinir.
posted by Nonni & Beta 22:37
|
|