mánudagur, október 31, 2005
Kjartan Barði Beckham
Fórum á laugardaginn á fund hjá Íslendingafélaginu Kjartani hérna í Þrándheimi sem er í sjálfu sér ekkert rosalega merkilegt en það merkilega við þennan aðalfund var eiginlega það að það var fullt af fólki! Eitthvað sem Kjartan er ekki vanur. Ef við teljum með krakkana á fundinum þá vorum við bara um 20 stykki þarna. En það telst bara rosalegt. Nonni heldur áfram sem ritari Kjartans enn eitt kjörtímabil, sem er 1 ár. En það verður örugglega bara fínt því það var talsvert af fólki sem er á svipuðum aldri og við.

Á fundinum var stungið uppá því að fara á sunnudaginn (í gær) á tónleika með Bang Gang, með Barða Jóhannsson í broddi fylkingar. En þar sem tónleikarnir voru á sunnudegi og byrjuðu ekki fyrr en á miðnætti þá skiljanlega var Elísabet ekkert rosalega spennt að fara, enda er Barði með eindæmum furðulegur kappi. En Nonni sem einnig er pínu galinn var ekki að fara snemma í skólann í dag og skellti sér á tónleikana. En tónleikarnir voru bara nokkuð skemmtilegir, byrjuðu frekar rólega og svo eftir að þeir voru búnir að drekka aðeins meira þá voru þeir bara eins og litlir krakkar á róló að gera það sem ekki má.

En núna í Þrándheimi eru sko aldeilis gestir og ekki af verri endanum því að Beckham og hinir Real Madrid leikmennirnir eru komnir í heimsókn til að keppa við Rosenborg, leikurinn er á morgun þriðjudag, og því miður eigum við ekki miða á leikinn þannig að við verðum að láta okkur nægja að fylgjast með í imbakassanum. Það er eiginlega frekar slæmt fyrir Rosenborg að það er svona hlýtt úti þessa dagana, væri miklu betra fyrir þá að spila í frosti og kulda.

Er annars ekki eiginlega það sama að segja frosti og kulda, t.d. ef maður segir "Hei Bibbi það er frost úti" er maður þá ekki eiginlega í leiðinni að segja að það sé kalt? Nema við einhverjar sér aðstæður þar sem alltaf er frost eins og t.d. þar sem jólasveinninn býr. Svo ef maður segir "Hei Bibbi núna er bara kalt" þá er eins og maður sé að segja (við Bibba) að það sé kalt en ekkert endilega frost, eins og er í útlöndum. Er ekki annars alltaf heitt í útlöndum? Meira um það seinna.

Kveðjur frá okkur til ykkar
Elísabet Nonni Barði Beckham....
HA!! hvor barði Beckham? Elísabet eða Nonni?

posted by Nonni & Beta 17:12




föstudagur, október 28, 2005
Takk fyrir komuna Anna... og vertu velkomin aftur.
Nóg að gera í síðustu viku. Anna Birna var í heimsókn hjá okkur og vorum við því að snúast mikið í vikunni. Fara í búðir, skoða hitt og þetta, spjalla og njóta þess að vera saman. Það var ekki mikið að læra í vikunni sem betur fer eiginlega. Þetta passaði alveg ljómandi vel að fá heimsókn í þessarri viku.
En núna má fastlega búast við því að allt fari á fullt í skólanum, endaspretturinn á önninni nálgast eins og óð fluga :)
Á meðan Anna var hérna kom fyrsti snjórinn á þessum vetri. Hann staldraði reyndar ekki lengi við því hann lenti um nóttina og fór svo niður í niðurföll bæjarbúa í formi vatns fljótlega eftir að það hlýnaði um daginn.
Búin að finna okkur alveg helling skemmtilegt að gera, fórum í gær og prófuðum einhvern kínverskan stað hérna sem var mjög góður svo fórum í keilu. Það var samt ekki keilan sem heillaði. Þannig var að þegar við komum í keilusalinn voru allir brautirnar fullar þannig að við þurftum að bíða aðeins og þá ákváðum við að fara í smá þythokkí til að drepa tímann. Svo þegar við vorum búin að spila eina umferð allir á móti öllum þá var eiginlega samþykkt um leið að þetta væri ekki nóg þythokkí, þannig að við vasarnir voru tæmdir þannig að engin smámynt var eftir og spiluðum þar til keilabraut losnaði. Þar tókum við einn leik í keilu þar sem Elísabet fór á kostum og vann auðveldlega slaka andstæðinga. Eftir keiluleikinn hlupum við aftur í þythokkí þar sem einhverjir áttu harma að hefna. Og eftir að við vorum orðin auralaus upp fyrir haus, kófsveitt af þythokkísvita og komin með harðsperrur í hendurnar þá var kominn tími til að halda heim á leið. Þar tók við síðasta sjónvarpsglápið í sófanum og svo síðasta nóttin hennar Önnu hérna í bili.

En núna tekur við hasar hversdagsleikans eftir gestahasar með tilheyrandi skoðunarferðum og búðarápi, og við bara tvö aftur í kotinu, sem er auðvitað líka mjög fínt.

Viljum bara þakka Önnu þythokkímeistara fyrir komuna.

Nonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 14:37




sunnudagur, október 23, 2005
Boogie Night
Núna erum við komin með gest til okkar. Anna Birna frænka er komin til okkar. Hún verður hjá okkur þar til á föstudaginn næsta. Við erum búin að hafa það alveg rosalega gott síðan hún kom. Á föstudaginn fórum við niður í bæ eftir að Elísabet var búin í skólanum til að leita af fötum, en við fórum á diskóball á laugardaginn og við urðum auðvitað að vera uppdressuð. Svo við drógum Önnu með okkur um allan bæ, í allar búðirnar sem selja notuð og gömul föt. Og laugardagurinn fór reyndar líka í búðarrölt. Loksins fundum við einhver föt til að fara í á ballið.
En um kvöldið var það diskóballið! Við byrjuðum snemma að taka okkur til. Og tókum okkur góðan tíma í að gera lúkkið fullkomið. Stelpurnar settu í sig rúllur og glimmer. Svo kom Eirin vinkona okkar til okkar til og hún var einmitt á dansnámskeiði um daginn og sýndi hún okkur hvernig við áttum að hreyfa okkur á dansgólfinu.
Svo auðvitað fórum við á ballið seinna um kvöldið með viðkomu í partýi hjá stelpu í bekknum hennar Elísabetar. Á ballinu voru flestir alveg yndislega hallærislegir. Nokkrir í mögnuðum galla. Alveg frábært kvöld þetta laugardagskvöld.
Svo hefur sunnudagurinn bara farið í það að njóta þess að gera ekkert. Erum bara búin að hanga í náttfötunum horfa á sjónvarpið og borða og tala saman.

Meira um þetta og meira svona í næstu færslu
Kveðjur frá Þrándheimi
Nonni, Elísabet og Anna Birna

posted by Nonni & Beta 21:35




mánudagur, október 17, 2005
Revyen og bull/naut
Já við erum alveg að fá gest hingað til okkar. Anna Birna frænka hans Nonna kemur til okkar eftir örfáa daga, en meðal þess sem við ætlum að bralla verður magnað 70's ball, erum búin að kaupa miða á ballið, kaupa 70's safndisk þannig að það verður allt til alls þegar að ballinu kemur.
En síðustu vikurnar hefur verið ansi mikið um að vera í skólanum hjá okkur og við varla haft tíma fyrir annað en skólann.

En síðustu daga hefur heldur betur kólnað hérna... eftir ótrúlega gott veður undanfarið. Hitinn alveg kominn niður í frostmark. Það hlaut reyndar að koma að því að eitthvað myndi gefa eftir því að það er ekki eðlilegt að hitinn svona norðarlega sé svona hár. Aðalfréttin um daginn var að það var heitara í Molde en á Kanarí!! Já þetta er stórundarlegt. Heitasti september síðan mælingar hófust (1.sept?)

En við erum á morgun á leiðinni á UKArevyen, sem er revía á vegum UKA sem er í fullum gangi hérna í Þrándheimi og er stærsta menningarhátíð í Noregi. Þetta er á tveggja ára fresti og erum við að fara í fyrsta skipti á revíuna. Þetta verður spennandi.

En núna er komið að uppfyllingarefninu, bullinu. Eitthvað spennandi, skemmtilegt og fræðandi inn að beini. Ef þú vilt ekki lesa eitthvað bull og finnst bull almennt leiðinlegt þá skaltu bara endurskoða þá skoðun þína og halda áfram að lesa því að bull er allra meina bót. En eins og mamma mín sagði alltaf (þegar við átti) "Sælir eru fátækir því þeir klóra sér í gegnum götin". En allir vita núna hvað það er ömurlegt að fara í dýra lopanærbolinn sinn og nýju fínu 66° flíspeysuna sína og fatta svo að manni klæjar alveg óstjórnlega á olnboganum og nabblanum þá væri nú betra að hafa göt á álagstöðum á fötunum til að lauma fingrinum með beittu nöglinni fimlega inn í gatið og klóra sér og lina þjáningarnar. En nei nei... maður getur sko ekki klórað sér almennilega fyrr en nokkrum sekúndum seinna, agalegt!

N og E

posted by Nonni & Beta 18:04




laugardagur, október 01, 2005
Black and Blue
Allt fínt að frétta héðan úr Þrándheimi. Síðustu daga og vikur hefur verið ansi mikið að gera í skólanum, en það er bara allt í lagi því þá verður maður svo klár. Í gærkvöldi fór Elísabet í stelpupartý hjá stelpu úr bekknum, þar sem Backstreet Boys voru með tónleika í Noregi í gær þá var auðvitað þema í partýinu tengt þeim. Black and Blue. Allar klæddar í svart og blátt og það eina sem var var á fóninum allt kvöldið var Backstreet Boys. Ótrúlega skemmtilegt kvöld hjá Elísabetu og orðin fan, er maður ekki annars orðinn fan þegar maður veit hvað þeir heita allir.
Á meðan Elísabet naut sín með stelpunum gerði Nonni svolítið sem hann hefur ekki gert áður, hann skellti sér bara einn í bíó. Hann kom pínulítið of seinn inn í bíóið og settist í sætið sitt, sem var eina lausa sætið í röðinni og til að láta þetta ekki líta út eins og hann væri aleinn í bíó þá heilsaði hann fólkinu sem var báðum megin eins og hann væri með þeim... ofursvalur! Þeir sem voru vinstra megin héldu að hann væri með þeim sem voru hægra megin og öfugt.

Elísabet var víst klukkuð af Bebbu og hér koma 5 staðreyndir.

1. Ég borða ekki ávexti.

2. Mér finnst leiðinlegt að tala í síma.

3. Ég er frekar feimin og þess vegna er ekki margir sem þekkja mig mjög vel. Fólk heldur að ég sé allt öðruvísi en ég er í rauninni. Ég er með miklu meiri húmor en fólk heldur og Nonni er alltaf að stela bröndurunum mínum.

4. Ég hef einu sinni verið handtekinn. Var að vinna í hreinsuninni hjá Icelandair og við í vinnunni þurftum að fara upp á kanavöll og keyrðum víst yfir einhverja línu sem var nýbúið að setja upp til að merkja eitthvað bannsvæði. Og herlögreglan kemur með blikkandi blá ljós og segir okkur að fara úr bílnum, miðar á okkur byssu og segir okkur að labba af stað með hendurnar upp í loftið. Við náttúrulega sannir Íslendingar og fóru bara að skellihlægja af þessu og röltum af stað. Og svo vorum við í um klukkutíma í skýrslutöku áður en okkur var sleppt.

5. Það gæti verið að ég og Nonni séum að fara sem skiptinemar til Californiu eftir jól.

Jæja Bebba þá er klukkið komið.

Nú erum við að baka pítsu svo við kveðjum að sinni.
Elísabet og Nonni

posted by Nonni & Beta 18:27