mánudagur, september 26, 2005
Fótboltanörd Héðan er bara eiginlega eitt að frétta, það er skólinn, það er búið að vera nóg að gera í skólanum undanfarið. Vorum t.d. í skólanum til klukkan um 6 á föstudaginn.
En við erum að horfa á alveg magnaðan fótboltaþátt hérna... raunveruleikaþáttur þar sem búið er að safna saman fótboltaliði sem inniheldur bara "nörda" eða öllu heldur stráka sem kunna ekkert í fótbolta, nokkrir með sítt hár og spila bara tölvuleiki, aðrir hafa mikinn áhuga á prímtölum. Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera alveg skelfilega lélegir í fótbolta. Þeim var bara helt út í djúpu laugina strax og voru látnir keppa við 14 ára stelpnalið og þeir voru ekki alveg að halda í við þær enda voru þær bara að hlaupa hringi í kringum þá. En greyin töpuðu bara 10-0 og voru þeir bara nokkuð sáttir. Einn var rosalega sáttur við að vera tekinn útaf, ekki vegna þess að hann fékk smá hvíld heldur útaf því að þá voru allir að klappa fyrir honum.
Ekki það að þó maður kunni ekki fótbolta sé maður nörd og þó maður sé nörd kunni maður ekki fótbolta.
Nördar er í tísku, það geta ekki allir verið nörd... en einhver verður að vera nörd.
Nördakveðjur Nonni nörd og Elísabet nörd
posted by Nonni & Beta 22:01
|
laugardagur, september 17, 2005
Loturigning Hérna í Þrándheimi er loksins hætt að rigna í bili, það er búið að rigna alveg ótrúlega mikið undanfarið. Þetta hefur verið ansi undarleg rigning, því það er alveg eins og kallinn uppi vilji ekki vera að bleyta fólk of mikið í einu því það kemur alveg rosalega mikil rigning í smástund og svo stoppar það svo aftur hágrenjandi úrhelli. Það er tvennt sem er í stöðunni, guð er annað hvort algjör prakkari þessa dagana og bíður eftir því að sem flestir séu komnir út og búnir að ganga frá regnhlífunum þá skrúfar hann frá skýjunum og allir verða hundblautir á nokkrum augnablikum eða hann er bara að vökva gróðurinn og láti bara rigna þegar fólk er óhætt innandyra. Enn það sem er alveg öruggt það er að þessi loturigning undanfarna daga hefur verið hressandi. En í dag hefur verið alveg úrkomu laust og suðvestan 2-4 m/s sem sagt hið ljómandasta veður. Ánamaðkarnir sem hættu sér upp úr moldinni þorna á gangstígunum og litlu krakkarnir grenja út af því að þau mega ekki fara út að sulla í pollunum sem eru á undanhaldi.
En bloggsíðan eins og hún er núna er eitthvað að stríða okkur af ýmsum ástæðum, t.d. það hafa verið ýmis vandamál með að fá hana til að virka fullkomlega í aðaltegundum internetvafra, IE, Firefox og Opera. En við erum að vinna í þessu og vonandi verður þetta vandamál úr sögunni fljótlega. Einhverjir hafa verið í vandamálum að komast inn í myndirnar o.fl. Vonandi björgum við þessu.
En Gunnrún klukkaði hann Nonna, sem þýðir víst að þá verður maður að segja 5 tilgangslausar staðreyndir um sjálfan sig og klukka 5 aðra.
- Mér fannst fugladans heimskulegur þegar ég var lítill
- Ég er örvhentur
- Fyrsti bikarinn sem ég vann var fyrir teiknisamkeppni
- Ég hef notað sama blýant í 7ár í skóla
- Mér finnst ég fyndinn, hlæ oft af mínum bröndurum og skammast mín ekkert fyrir það
Þeir sem ég ætla að klukka eru... Fanney frænka, Addi Árna, Bebba, Atli Rúnar og Edda Sonja.
Biðjum að heilsa í bili NonnIogElísabeT
posted by Nonni & Beta 16:29
|
fimmtudagur, september 15, 2005
Vaknað við engil í rúminu Já við lofuðum að fara á fullt í blogginu og svo erum við bara ekkert búin að skrifa síðan. Uss það er alveg skelfilegt.
Fyrir nokkrum dögum vaknaði Nonni við það að það var engill í rúminu. Þetta hljómar voðalega guðdómlegt allt saman, en þetta var það í rauninni ekki því að greyið vaknaði við það að lítil englastytta sem Elísabet er venjulega með á náttborðinu var allt í einu komin upp í rúm og potaði svona líka skemmtilega í bakið á Nonna þannig að hann gat ekki sofið fyrr en hann var búinn að fjarlægja engilinn. Þá loksins gat Nonni sofið rótt.
Svo síðustu daga hefur verið alveg ótrúlega mikil rigning hérna í Noregi og t.d. þá var meiri rigning í Bergen (Björgvin) en nokkurn tíma, sem mesta rigning síðan mælingar hófust. Veitum reyndar ekki hvenær mælingar hófust. Þetta svona næstum eins og í New Orleans nema bara ekki eins.
Svo erum við að fá gest(i) í heimsókn til okkar bráðum og það verður mjög gaman, alltaf svo skemmtilegt að fá gesti til að dekra við, sýna bæinn og gera eitthvað spennandi. En Anna Birna frænka okkar er að koma 20.okt og við höfum það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að hún sé svo spennt að hún sé búin að pakka, kaupa sér ferðatannbursta og Séð og Heyrt til að lesa í flugvélinni á leiðinni. Svo er Elísabet Leifs væntanleg til okkar einhverja helgina á næstunni, það verður nú stuð og glatt á Hjalla, það fer ekki á milli mála. Við hlökkum mikið til að fá heimsókn. Þið hin sem ekki eruð búin að boða komu ykkar eruð auðvitað alltaf hjartanlega velkomin hvenær sem er á milli kl.9 og 5.
En annars gengur lífið hérna sinn vanagang, eitt skref í einu. Skólinn á fullu og án þess að maður veit af þá er komin helgi aftur. Hvað er annars að frétta af ykkur?
Kveðjur úr rigningunni NonniogElísabet
posted by Nonni & Beta 20:18
|
mánudagur, september 12, 2005
Nýtt útlit á síðunni og fjör
Við erum búin að breyta síðunni okkar. Þannig að við getum loksins byrjað að skrifa aftur, erum líka búin að setja inn alveg helling af myndum. Ef þið bara farið yfir myndirnar hérna á síðunni með músinni þá eiga að koma upplýsingar hvað hver mynd gerir eða ýtið á þær þá eiga að koma valmöguleikar til að velja. Myndin af Elísabetu er t.d. linkurinn til að komast á myndirnar. Endilega skoðið myndirnar því við vorum að setja inn myndir frá því í sumar og svo líka frá 80's ballinu sem við vorum á núna á föstudaginn.
En þetta 80's ball var auðvitað alveg magnað, allir svo yndislega halló og kjánalegir. Við vorum mætt þarna í okkar allra fínasta pússi, eins og þið getið séð á myndunum.
Fyrst að við erum komin með þessa líka flottu síðu þá verðum við duglegri að skrifa. Svona fyrir ykkur sem eruð alveg í spreng ykkur langar svo að lesa meira um hvað sé að frétta af okkur þá koma kannski hérna nokkrir molar. *moli* Við erum núna komin á fjórða ár í verkfræðinni hérna í Þrándheimi. *moli* Sem þýðir að núna eru bara rétt tæp tvö ár eftir. *moli* Okkur líst bara vel á önnina í skólanum það sem af er. *moli* Við vorum að vinna í sumar heima á Íslandi, *moli* Elísabet hjá Tækniþjónustu SÁ og *moli* Nonni hjá Eykt. *moli* Okkur líkaði það báðum mjög vel.
Til að halda þér spenntum lesandi góður þá ætlum við ekki að hafa þetta lengra í bili, en það er von á meira fljótlega. Fylgist með.
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 08:49
|
|