laugardagur, maí 21, 2005
17.maí, Eurovision og allur sá pakki

Sæl og blessuð, héðan er allt fínt að frétta. Ótrúlega mikið búið að vera að gerast á þriðjudaginn var þjóðhátíðardagur Norðmanna og auðvitað var mikið húllum hæ hérna, um morguninn þann 17.maí fengum við símtal frá útvarpsstöð heima og Nonni var í beinni og sagði frá því hvað væri í fréttum hérna, hvernig stemmningin væri á 17.maí og hvernig Noregur væri svona almennt. Svo skelltum við okkur niður í bæ að fylgjast med skrúðgöngunni um miðbæinn. Fengum okkur svo köku og med thví á vel völdu kaffihúsi, eina kaffihúsið sem við fundum með laus sæti.

Svo á fimmtudaginn var það hún Selma okkar sem fékk okkar athygli, við buðum nokkrum stelpum í heimsókn til okkar að horfa á með okkur, Margrét kom og svo líka tvær stelpur sem voru með okkur í skólanum, og þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld fyrir utan það að Íslandi komst ekki áfram. En það kemur Eurovision eftir þessa Júróvision.

Svo í gær föstudag var það úrslitin í norska Idolinu, og það voru tvær stelpur í úrslitum, en það var hún Jorun Stiansen sem stóð uppi sem sigurvegari.

Svo var það úrslitakvöldið í Eurovision en það var nokkuð skemmtilegt, nokkur skemmtileg lög og meðal þeirra var ekki lagið frá Makedóníu. En áfram Ítalía! Lagið þeirra var rosalegt.

Svo jæja þá er það bara beint í háttinn og henda sér svo í bækurnar á morgun.

Svonni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 23:59




föstudagur, maí 13, 2005
Hann á afmæli í dag...



Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Ragnar,
hann á afmæli í dag!!


Til hamingju með afmælið "litli" bróðir!
Hafðu það nú sem allra best í dag, gerðu eitthvað skemmtilegt!
Og gangi þér vel í prófinu... við hugsum til þín.

Elísabet og Jón

posted by Nonni & Beta 09:34




þriðjudagur, maí 10, 2005
Mánuður í heimkomu
Og vonandi eitthvað lengra í snjókomu... góuressi.
En já við erum að koma heim á klakann eftir mánuð í dag. Komum sem sagt heim 10.júní fyrir ykkur sem nennið ekki að reikna þetta allt saman. Þar sem það er mánuður í heimkomu eru prófin alveg að skella á okkur og við erum eiginlega ekki farin að læra almennilega undir þau vegna þess að við erum þessa dagana að klára að gera skýrslu/ritgerð fyrir eitt fag sem er próflaust. Og síðustu daga hefur verið mikið að gera í þeim efnunum en vonandi fer að fara hægjast áður en stomur prófalesturs, einbeitingar og stresss. (hvernig er annars orðið stress í eignarfalli?)

Tilhlökkun og stress, veriði bless.
Elísabet og Jón

posted by Nonni & Beta 16:39




föstudagur, maí 06, 2005
Þar fór það.
Viljum byrja á því að óska Bebbu og Hjörleifi innilega til hamingju með litlu snúlluna þeirra.
Fyrir ekki svo löngu síðan vorum við alveg farin að sjá fram á það að við myndum vera fastagestir í sundlauginni í sumar vegna aðgerðaleysis. En það virðist ætla að rætast úr því amk eins og staðan er núna. Nonni er allavega kominn með vinnu hjá Eykt og samkvæmt því sem hann hefur heyrt verður alveg brjálað að gera þar í sumar og það er fínt fyrir budduna. Og auðvitað er Nonnalingurinn kampakátur með það.

Fórum svo í bíó klukkan 2 um daginn í gær, þar sem það var frí í skólanum. En það er fínt að fara í bíó um miðjan dag ef maður hefur ekkert betra að gera. Sáum myndina Kingdom of Heaven með súkkulaðistráknum, álfinum og sjóræningjanum Orlando Bloom, og við vorum nokkuð sammála að myndin var mjög góð og Orlando stóð sig eins og hetja... enda var hann hetjan.

kv.
Elísabet elísabet og Nonni Sponni (það rímar ekkert við Elísabet!)

posted by Nonni & Beta 20:03




þriðjudagur, maí 03, 2005
Ó hve létt er þitt skóhorn
Já það er kominn maí, og tími til kominn að fá sér ís... maís!
En eftir um viku er tölvan hans Nonna loksins komin aftur á rétt ról eftir að hafa verið send um landið þvert og endilangt í læknismeðferð, þar sem hún fékk nýjan harðan disk þar sem hinn var of linur og nýtt hitadreyfiflæðikerfi og núna er hún jafnsvöl og mörgæs með sólgleraugu. Og auðvitað er Nonni kampakátur með að vera kominn á fullt aftur.

En núna erum við að hefja lokasprettinn á þessarri önn og það eru ýmis verkefni sem er verið að leggja lokahönd á þessa dagana og mikill hamagangur í skólanum. En þetta er nú orðið ansi löng önn, og þegar við heyrum í fólkinu þarna heima vera að tala um að það sé prófum núna eða alveg að byrja þá reynum við bara að finna eitthvað skemmtilegt annað að tala um eins og veðrið. Fá orð fallegri á íslenskri tungu en stinningskaldi en orðatiltæki eins og "suðsuðvestan gola" lætur fólk sem vind um eyru þjóta.

Svo endilega endilega að skoða myndirnar sem við vorum að setja inná síðuna.
Ýtið bara á myndir og Afmæli.

Stay in school
Noddni Spoddni og Elísabet

posted by Nonni & Beta 19:49