föstudagur, desember 24, 2004
Kertasníkir
Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.
Jóhannes úr Kötlum
Gleðileg jól!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 17:51
|
fimmtudagur, desember 23, 2004
Ketkrókur
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Jóhannes úr Kötlum
Jólin eru á morgun!!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 09:03
|
miðvikudagur, desember 22, 2004
Gáttaþefur
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Jóhannes úr Kötlum
2 dagar til jóla...
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 17:49
|
þriðjudagur, desember 21, 2004
Gluggagægir
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Jóhannes úr Kötlum
Allt fínt að frétta héðan frá Íslandi, fórum í klippingu í gær og rúnt um Reykjavíkina það var nú aldeilis gaman. Það er ekki búið að setja upp plan fyrir daginn en það verður örugglega gert eitthvað skemmtilegt...
þangað til næst...
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 17:47
|
mánudagur, desember 20, 2004
Bjúgnakrækir
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Jóhannes úr Kötlum
Kveðja frá Íslandi...
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 17:46
|
sunnudagur, desember 19, 2004
Skyrjarmur
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Jóhannes úr Kötlum
...á leiðinni heim!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 08:32
|
laugardagur, desember 18, 2004
Hurðaskellir
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Jóhannes úr Kötlum
Fórum í próflokapartý í gær, svakastuð. Jólasnjórinn kominn og jólagjafirnar líka.
Komum heim á morgun. Tilhlökkun á hæsta stigi.
Útskriftarnemar, Til hamingju með daginn
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 17:43
|
föstudagur, desember 17, 2004
Askasleikir
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Jóhannes úr Kötlum
Síðasta prófið í dag og svo jólafrí.
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 07:51
|
fimmtudagur, desember 16, 2004
Pottaskefill og frægð!
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Jóhannes úr Kötlum
Jæja þá eru bara 8 dagar til jóla og einungis 3 dagar í heimkomu.
Endilega kíkið svo á frægafólkið í dag!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 19:54
|
miðvikudagur, desember 15, 2004
Þvörusleikir
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Jóhannes úr Kötlum
...9 dagar til jóla..
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 16:33
|
þriðjudagur, desember 14, 2004
Stúfur
Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Jóhannes úr Kötlum
3 dagar í síðasta próf, 5 dagar í heimkomu og 10 dagar til jóla!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 13:24
|
mánudagur, desember 13, 2004
Giljagaur
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Jóhannes úr Kötlum
11 dagar til jóla..
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 11:42
|
sunnudagur, desember 12, 2004
Stekkjastaur
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.
Jóhannes úr Kötlum
Vika í heimkomu og 12 dagar til jóla!!
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 15:34
|
mánudagur, desember 06, 2004
Pínu pása og nóg að gera
Já það er ekki alveg það sama uppá teningunum hjá okkur. Nonni er búinn með 3 próf og fer ekki það næsta og síðasta fyrr en þann 17.des og Elísabet þarf að fara í 3 próf til viðbótar. Og því er Elísabet á fullu að lesa og læra á meðan Nonni leikur sér á netinu og gerir bara eitthvað skemmtilegt á daginn svona eins og að liggja uppí sófa, undir teppi og horfir á Oprah (Óprú), Dr.Phil og fleiri svoleiðis þætti.
Bara nokkririr dagarar í heimkomumu.
Ahhh!!! Veit ekki hvað á að segja meira.
Bæbb
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 20:16
|
|