þriðjudagur, nóvember 30, 2004
Próf próf próf
Núna hefst hamagangurinn fyrir alvöru! Við erum að fara að byrja í prófum eiginlega bara núna. Nonni fer í sitt fyrsta próf á morgun eða réttara sagt 1.des, og koma prófin okkar á færibandi eftir það. Við erum búin að vera agalega svakalega dugleg að læra og því ekki eins dugleg að blogga. En auðvitað skilja það allir, vonum við.
Það eru bara 20 dagar þangað til að við komum heim! Við erum farin að hlakka allsvakalega agalega mikið til að koma heim.
Þetta verður bara stutt núna.
Bæbæ
Nonnni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 11:08
|
mánudagur, nóvember 22, 2004
Afmælisbarn dagsins!
Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Nonni,
hann á afmæli í dag!!!
Til hamingju með daginn prinsinn minn.
Elska þig mikið!
Þín Elísabet
posted by Nonni & Beta 13:02
|
föstudagur, nóvember 19, 2004
Snjór snjór snjór
Það er bara mánuður þangað til að við komum heim í jólafrí. Nákvæmlega 19.des komum við heim og kíkjum í stuðið.
En það sem er aðal núna er snjórinn sem er kominn hjá okkur, það er búið að kyngja niður snjó, við erum búin að vera með mælingar reglulega á svölunum hjá okkur þar sem við getum auðveldlega mælt þykktina á snjónum og er þykktin einmitt núna komin í "hellingur af snjó" eftir að hafa komist yfir það að vera "smá snjór" og "slatti af snjó".
Fórum líka niður í bæ aðeins í gær og ætlum aftur í kvöld og þá ætlum við líka að fara í bíó að sjá nýju Bridges Jones myndina. Orðið ansi langt síðan við fórum í bíó síðast og við hlökkum mikið til.
Kveðjur frá Snælandi
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 14:08
|
miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Snjókast
Hérna er búið að snjóa alveg rosalega mikið undanfarna daga, við vöknuðum á mánudaginn og þá var allt orðið hvítt úti. Það var heldur betur jólalegt og kósý. Svo seinnipartinn rigndi því öllu burt. En svo fór aftur að kólna og svo koma líka þessi fínasta snjókoma. Og núna þegar þessi orð eru skrifuð þá er 15cm jafnfallinn snjór yfir öllu. Og snjóar ennþá.
Og auðvitað þegar svona veður kemur þá er um að gera að klæða sig í kuldagallann og fara út að leika. En það gerðum við einmitt í gærkvöldi, klæddum okkur í snjógallana og strigaskóna (eigum ekki kuldaskó) og hentumst út í snjókast. En áður en við fórum út ákváðum við að vera í sama liði í snjókastinu. Þar vorum við á móti hinum. Og við hlupum út tilbúin í tuskið og fórum að henda í fólk á förnum vegi! Enginn slapp, við höfðum varla við að hnoða snjóabolta áður en þeir enduðu í rassinum eða bakinu á fólki sem ekki bjóst við neinu. Þegar við vorum búin að vinna í snjókastinu fórum við út á tún og fórum að gera snjóengla. Magnað kvöld alveg.
Svo endaði kvöldið auðvitað heima með heitu kakói.
Svo áðan vorum við að horfa á fyrsta þáttinn í nýja Amazing Race. Þar sem viðkomustaðurinn er Ísland, það er ekkert smá gaman að sjá Ísland í svona þætti, það voru allir svo jákvæðir af keppendunum þegar kom að Íslandi. Ótrúlega fyndið líka að heyra fólkið reyna að bera fram hin og þessi nöfn heima svona eins og Seljalandsfoss. Og það verður að segja að þetta er alveg frábær auglýsing fyrir land og þjóð. Rosalega flottar myndir af landinu og þau voru að gera ýmislegt mjög spennandi. Svo var þetta líka fyrsti þátturinn í seríunni þannig að þetta var tveggja tíma þáttur og gerðist nánast allur á Íslandi.
Snjókveðjur frá Norge
Snæfinnur og co.
p.s. vorum ekki í alvörunni að henda snjóboltum í fólk, þetta hljómaði bara miklu meira spennó svona.
posted by Nonni & Beta 19:56
|
föstudagur, nóvember 12, 2004
Allt á fullu
Nóvember er nánast að verða hálfnaður og því nálgast prófin, það eru aðeins 20 dagar í fyrsta próf hjá okkur. En við erum farin að hlakka mikið til að klára prófin, því að þá förum við heim í jólahamaganginn.
Langar til að segja eitthvað alveg rosalega spennó en það er svo rosalega lítið að frétta að það eru eiginlega fréttir út af fyrir sig. Sjáum þetta alveg fyrir okkur í fréttunum hérna, "Rosenborg gerði 4-4 jafntefli á móti sænska liðinu Djurgarden... hér var að koma á borð til okkar stórfrétt... en alls ekkert spennandi er að frétta úr herbúðum Elísabetar og Nonna þar sem þau eru bara að læra undir próf og svoleiðis, en lífið gengur bara sinn vanalega gang hjá þeim... en aftur að hinum fréttunum..."
Við fórum reyndar niður í bæ á föstudaginn og Nonni tók sig til og keypti líka þessa fínu skyrtu í H&M. Þar sem þessi búð er svo búin að vera svo góð við okkur síðustu missseri þá ætlum við að auglýsa hana... og við tökum ekkert fyrir það.
En fljótlega fara hlutirnir að gerast þegar líður á nóvember.
Kveðjur frá Þrándheimi... þar sem hlutirnir gerast (bara ekki nákvæmlega núna)
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 10:11
|
laugardagur, nóvember 06, 2004
Fréttaskot
Síðasta vika hjá okkur hefur ekki verið rosalega spennandi fyrir áhorfendur, aðallega vegna þess að við erum búin að vera að læra talsvert og svo gera þessa vanalegu hluti, borða, sofa, dansa fugladansinn og læra aðeins meira. En við erum samt sem áður kampakát. Það eru ekki einu sinni 50 dagar til jóla! Heldur eru eitthvað færri en það sem verður nú að teljast góður árangur.
Fórum áðan niður í bæ að gera okkur glaðan dag, fengum okkar að borða og gegnum um blautar götur Þrándheims, en það var rigning hérna í morgun. Það er orðið svolítið jólalegt andrúmsloft í miðbænum, maður finnur það bara að það eru að koma jól. Það eru þó ekki komnar neinar skeytingar, en maður finnur þetta bara.
Fljótlega fer maður að taka fram jólageisladiskana sína (Strumpajól og humm.. já bara Strumpajól) en það er diskur sem aldrei klikkar þegar á að koma manni í jólafílinginn.
Ætluðum að fara að skoða jólaskraut en það var búið að loka búðinni sem við ætluðum í en það var sennilega okkur að kenna því við komum alltof seint.
Jæja við biðjum innilega og útilega að heilsa öllum.
NonninnoN og ElísabetebasílE
posted by Nonni & Beta 20:00
|
|