sunnudagur, október 31, 2004
Halló Vín
Í dag er hrekkjavaka og það hefur ennþá enginn komið til okkar að biðja okkur um nammi, ef það kemur enginn mjög fljótlega borðum við allt nammið sjálf!
Okkur var boðið í matarboð núna á föstudaginn, Ingvild sem er með okkur í skólanum bauð okkur að koma að snæða Fajitas með sér og kærastanum sinum, Knut. Það var alveg frábært hjá þeim í alla staði. Og ef þið eruð eitthvað að fara að elda fajitas á næstunni mælum við með því að vera með hnetur í fajitasinu ykkar, svo lengi sem þið eruð ekki með ofnæmi fyrir hnetum. Það er ótrúlega gott.
Svo þegar við vorum á leiðinni heim áttuðum við okkur á því að við erum orðin alveg helv.. góð í norskunni.
Elísabet er búin að vera að gera verkefni í skólanum þar sem hún og hópurinn hennar áttu að búa til brú, eða amk koma með hugmynd af brú og reikna út burðarþolið og svoleiðis. Svo í vikunni voru þau með fyrirlestur þar sem brúin var kynnt fyrir kennaranum og einhverjum körlum og þetta gekk líka svona rosalega vel hjá þeim og brúin þeirra var ótrúlega flott. En núna erum við búin með öll svona stærri verkefni á þessarri önn.
Elísabet er búin að búa til plan fyrir Nonna þar sem hann er með frekar skelfilega próftöflu, og greyjið kúturinn fær eiginlega ekkert að sofa eða gera neitt skemmtilegt næsta mánuðinn, það er bara einn dagur þar sem Nonni fær alveg frí! En það er auðvitað afmælisdagurinn hans.
En meira af greyinu honum Nonna en hann er búinn að vera aðeins veikur síðustu daga, kvefaður og svoleiðis.
Svo fyrir ykkur sem hafið áhuga á tíma, þá er búið að breyta klukkunni hérna og núna er 1 klukkutíma munur á Íslandi og Noregi.
Svo var Rosenborg að vinna sinn 13.meistaratitil í röð í norska boltanum.
Rúúú - seeeen - booooorg.
Áfram Rosenborg!
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 18:06
|
sunnudagur, október 24, 2004
Spilakvöld Kjartans
Er ekki kominn tími til að við segjum eitthvað af viti?
Af hverju spyrðu?
Af hverju ekki?
Finnst þér ég sem sagt með marblett?
Nei ég sagði það ekki, fannst þér það?
Af hverju horfirðu svona á mig?
Af því bara ég má það.
Annars er allt fínt að frétta af okkur, við erum búin að hafa í nógu að snúast í skólanum, verkefni og þar fram eftir götunum. En fljótlega fara þessi stærri verkefni nú að taka enda og þá tekur við ekki ómerkilegra og tímabil en það er þessi blessaði prófaundirbúningur (við ætlum að koma í svoleiðis á næsta grímuball). Já það er heldur betur farið að styttast í að prófin koma. En tíminn líður hratt þegar það er mikið að gera, en eins og einhverjir vita er að tíminn líður alltaf jafn hratt og líka jafnhægt.
En núna á föstudaginn var Íslendingafélagið Kjartan með spilakvöld sem haldið var í Ísakoti, en það er einmitt eiginlegt félagsheimili okkar hérna. Og þar sem formaðurinn er á Íslandi í heimsókn og svoleiðis vorum það við sem tókum að okkur að sjá um þetta spilakvöld. Þó að það hafi verið frekar fámennt þá var þetta mjög fínt.
Búið í bili
N&E
posted by Nonni & Beta 10:52
|
mánudagur, október 11, 2004
Já þegar við vöknuðum í morgun og gengum í skólann þá var bara komið frost, en eins og vitur maður sagði einu sinni "Eftir fyrsta frostið kemur vetur, stundum."
Það er sem sagt orðið kalt úti svona aðallega á morgnana. En það kemur þó ekki í veg fyrir það að við hetjurnar hisjum upp um okkur ermarnar og hömumst í skólann þegar á reynir. Síðasta vika í skólanum var svona eins konar "frívika", þ.e.a.s. það voru ekki fyrirlestrar, en auðvitað nýta flestir kennarar það og skella bara á auka verkefnum og hafa þau stærri en venjulega. Það var eiginlega bara meira að gera hjá Elísabetu í síðustu viku heldur en venjulega en Nonni "slapp" óvenjuvel með verkefni. En núna er allt komið í sinn vanagang.
Eigum við ekki bara að segja þetta gott í bili.
Nonni & Elísabet
posted by Nonni & Beta 20:53
|
föstudagur, október 01, 2004
Aftur í tímann/stuðið
Vegna skorts á dauðum tíma höfum við ekki komið okkur að því að skrifa hérna undanfarið. En það er ekki vegna þess að lítið hefur verið að frétta, þvert á móti hefur verið ótrúlega mikið um að vera hjá okkur undanfarnar vikur.
Ef við byrjum á byrjuninni, þá fór Elísabet til Danmerkur ,fimmtudaginn 16.sept, í heimsókn til Elísabetar L. og hitti þar líka Berglindi. Það var rosalegt stuð. Við gerðum svo margt, fórum á kaffihús, í Tívolíð, á Strikið og kíktum í búðirnar og út að borða og á diskótek og margt margt fleira. Þetta var alveg frábær ferð og alveg magnað að hitta þær stöllur, því það var orðið ansi langt síðan við höfðum sést. Og þess vegna mikið talað sem er nú alltaf skemmtilegt.
Svo á föstudaginn 17.sept komu 3 drengir til Þrándheims í heimsókn til okkar, Atli, Heiðar og Jón. Nonni var aleinn heima þá, því Elísabet var í Kaupmannahöfn og því fór Nonni einn upp á flugvöll að taka á móti peyjunum. Þeir voru allir í svaka stuði loksins komnir eftir að hafa beðið eftir ferðinni í langan tíma. Svo fórum við guttarnir fjórir út á lífið á laugardeginum og dönsuðum hinu ýmsu dansa. Meðal annars, "kusk á jakkanum" og "bréfberadansinn". Þetta var sko alvöru hamagangur!
En hvað gerðum við á meðan drengirnir voru hér í bænum. Jú við fórum í keilu, pool, fórum á Rosenborgarleik og á leik með hinu magnaða Trygg/Lade liði og spiluðum Catan. Þetta var ótrúlega fínt að hafa þá hérna, og ef einhver er að velta því fyrir sér þá voru þeir alveg ótrúlega stilltir, þeir fengu allir broskallastimil í bókina. En þar sem þeir voru hérna á meðan við vorum á fullu í skólanum tóku þeir uppá því að snúa sólarhringnum við og horfa á sjónvarpið og tölvuna langt fram yfir háttatíma, en það má þegar maður er í fríi.
Svo á mánudeginum 27.sept þegar við vorum búin að kveðjast öll í hring og við vorum farin í skólann, þá fáum við allt í einu hringingu frá þeim... "megum við kúra hjá ykkur eina nótt í viðbót? Það er verkfall og við komumst ekki til Osló."
Auðvitað leyfðum við þeim að vera eina nótt í viðbót, og þar sem þeir fóru í loftið og flugvélinni var snúið við þá voru þeir að koma í alveg nýja heimsókn, og það þýddi að þeir urðu að skrifa aftur í gestabókina.
En á þriðjudeginum fengu þeir flug til Osló og gátu farið heim á klakann.
Og núna er allt komið í venjulegan farveg, skólinn kominn á fullt og við orðin ein í kotinu.
Hæ hó hopp og hí og hamagangur á Hóli
Í alvöru, ekki djóka!
Gegt
Kveðjur
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 19:31
|
|