þriðjudagur, september 14, 2004
Við vonum að allir séu búnir að skoða myndirnar af okkur í London því að það var svo skemmtilegt þar. Endilega skellið ykkur það að skoða ef þið eruð ekki þegar búin að kíkja á þær.
En svona til að koma okkur úr London gírnum, en við höfum reyndar verið í honum alllengi. Því undanfarna daga hefur styst í það að 3 drengir úr Garðinum ætla að leggja land undir fót og koma til Þrándheims í sæluna. Já, Atli, Heiðar og Jón Ingibjörn ætla að koma í heimsókn til okkar og verða hérna hjá okkur í 10 daga, þeir koma hingað á föstudaginn. Það verður nú heldur betur spennandi að fá þessa kátu kúta í kotið. Reyndar hefur veðrið verið uppá allmarga fiska hérna undanfarið því að miklar rigningar hafa gert það að verkum að götur bæjarins eru allar að verða yfirfullar af fiskum sem synda hérna um eins og þeir eiga lífið að leysa. Með öðrum orðum, það er búið að rigna alveg ótrúlega mikið síðustu tvær vikurnar. En það hlýtur að stytta upp fljótlega því að það getur ekki verið endalaust vatna fast uppí skýjunum.
Elísabet er svo líka að fara aftur til útlanda! Hún ætlar að skilja Nonna einan eftir heima á meðan Nonni tekur á móti gestunum. En Elísabet ætlar að fara til Kaupmannahafnar til að hitta vinkonur sínar, Elísabetu Leifs og Berglindi. Þær ætla að fara í Tívolí, en þessi næsta helgi er einmitt síðasta sjens að fara í hið fræga Tívolí í bili því sumarið er alveg að verða búið þar eins og á flestum öðrum stöðum.
Kærar kveðjur frá útlöndum nær og fjær
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 22:39
|
miðvikudagur, september 01, 2004
Myndirnar frá London
Myndirnar frá London eru komnar inn! Endilega kíkið á þær hér
Við erum líka búin að setja inn á myndirnar komment kerfi svo að þið getið sagt okkur hvað við erum frábær og flott.
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 15:30
|
|