sunnudagur, maí 30, 2004
Nokkrir dagar í frí
Við erum núna bara búin að vera að reyna vera eins dugleg og við getum að læra undir próf, við fórum í próf á fimmtudaginn og það gekk bara alveg ljómandi vel höldum við, og svo er síðasta prófið á laugardaginn og við verðum að vera dugleg að halda okkur við efnið því að það próf verður mjög sennilega langerfiðasta prófið af þessum prófum sem við tökum.
Svo á föstudaginn var Nonni að spila sinn fyrsta löglega leik með fótboltaliðinu sem hann er búinn að vera að æfa með og það var ekki beint opnunarleikurinn sem hann vonaðist eftir því að eftir um hálftíma vorum við komnir 4-0 yfir og þegar um 15mín voru eftir, voru Nonni og félagar 4-2 yfir og Nonni kemur inn á og á þessum 15 mín þá fáum við á okkur 3 mörk og töpuðum 5-4. Ótrúlegt að klúðra þessu svona... en ef við lítum á björtu hliðina þá fékk Nonni að taka 3 miðjur.
Svo er Nonni víst búin að koma sér í stjórn Íslendingafélgsins hérna í Þrándheimi, hann er víst orðinn ritari en hann fékk það embætti eftir að hafa sent inn sýnishorn af rithöndinni sinni og öðrum meðlimum úr stjórninni leist vel á hana og svo eru örvhentir ritarar mjög eftirsóttir.
Jæja við ætlum að fara að halda áfram að læra
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 13:34
|
laugardagur, maí 22, 2004
2 próf eftir
Já þá erum við hálfnuð með prófin, því að við vorum að klára okkar annað próf af fjórum sem við eigum að fara í. Við erum ekki búin að vera að gera neitt mikið meira en að vera að læra undanfarið enda er það yfirleitt svoleiðis þegar maður er á fullu í prófum.
Það er svo sem ekki mikið að segja frá hérna, nema það að það eru allir í verkfalli á leiðinni í verkfall eða nýkomnir úr verkfalli. Búðirnar hérna halda áfram að tæmast þó að það sé nokkuð mikið til af vörum hérna í búðinni á horninu, það kemur mjólk eins og venjulega og svo eru líka til ávextir eins og venjulega og kjöt og svoleiðis er til, en það er eiginlega allur pakkamatur (pasta, hrísgrjón, sósur ýmiskonar) nánast uppseldur, svo er flestur dósamatur líka horfinn, það er eins og fólk hafa hópast og keypt þær vörum sem endast lengst, allt í einu var ekki til nein tómatsósa... af hverju riðst fólk inn í búðir og hamstrar tómatsósu? Svo var líka um daginn mikill klósettpappír skortur... en núna er sko búið að redda því, því núna eru allar hillurnar sem áður fylltu búðirnar með hinum ýmsu vörum fullar af klósettpappír! Búðirnar hafa sko ekki ætlað að láta koma klósettpappír skort aftur og keypt nóg af pappírnum til að búa til 1000 múmíur! En sem betur fer er ástandið ekki neitt lífshættulegt, það er enn til snakk og gos.
Já allir starfmenn í Vífilfell og Ölgerð Egils Skallagrímssonar okkar Norðmanna fóru í verkfall og þá auðvitað hópaðist fólk út í búð að kaupa bjór í kassavís og kók og annað gos einnig, og allir sem talað var við í sjónvarpinu sögðust vera að fara að halda veislu... ekki var okkur boðið í neina veislu! En svona er þetta allir hópast og hamstra og það var líka bara svolítið fyndið því að það er búið að leysa gos- og ölframleiðendaverkfallið eftir tveggja daga verkfall. Við gleðjum okkur við þá staðreynd að núna fer að flykkjast aftur inn í búðirnar bjór og gos eins og ekkert hafi gerst.
Jæja eigum við ekki bara að segja þetta gott í bili og við heyrumst síðar víðar upp um hlíðar
alltaf gaman að enda á rími... lími.. tími. slími
No og El
posted by Nonni & Beta 07:53
|
sunnudagur, maí 16, 2004
Júróvisjon
Já hérna í Noregi er hálfgerð þjóðarsorg þar sem Noregur lenti í síðasta sæti í Eurovision með heil 3 stig og þar sem norski söngvarinn vildi meina að voru eiginlega bara samúðarstig frá Svíum. En það gekk heldur betur hjá Íslendingum því að þeir fengu margfalt fleiri stig en Norðmenn, eða alls 16 stig talsins og 19 sæti staðreynd. Og við viljum bara benda á að Ísland fékk 5 stig frá okkur hérna í Noregi og við lágum í símanum í þessar 10 mínútur sem mátti kjósa.
Okkur var boðið í þetta líka fína alíslenska júróvision partý hérna þar sem nokkrir af íslensku krökkunum komu og hristu sig við misgóð lög frá öllum Evrópuhornum. En það var eitt lag sem gjörsamlega stóð uppúr hvað lélegheit varðar, það voru Rússarnir, það lag var svo illa sungið að það var eftirminnilegt og svo að senda Teletubbies til að dansa þarna með! Þeir voru bara að henda söngkonunni til og frá. Þetta var rosalegt atriði! Það eina góða við Rússana var að þeir gáfu Íslandi stig. En Úkraínska lagið var nú eiginlega bara fínn sigurvegari þetta var fín sýning hjá þeim.
Og svo þegar keppnin sjálf var búin var húsgögnunum í íbúðinni sem við vorum í rutt út í horn og dansað fram á nótt. Frábært partý.
Verður maður ekki líka að tala um Jónsa, hann stóð sig nú heldur betur prýðilega og við vorum stolt af guttanum. Norski kynnirinn hjálpaði örugglega alveg til við að gefa Íslendingum stig því að hann var að tala um að Jónsi væri 1/4 Norðmaður og ef maður fengi ekki gæsahúð þegar maður hlustar á þetta lag væri maður ekki í lagi. Kynnirinn var rosalega jákvæður þegar hann talaði um Jónsa sem hjálpar auðvitað alltaf til.
Svo vorum við líka að bæta inn nokkrum myndum frá gærkvöldinu þar sem stemmningin var rosaleg!
Endilega farið inn í myndir og veljið þar Eurovision partý.
Bless í bili
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 18:46
|
fimmtudagur, maí 13, 2004
Til hamingju með daginn!!
Í dag á Ragnar, litli bróðir hennar Elísabetar afmæli, og það er nú ansi gaman. Við viljum óska honum til hamingju með daginn, vildum að við gætum verið þarna hjá þér til að halda upp á daginn.
Njótið dagsins....
Elísabet & Nonni
posted by Nonni & Beta 09:32
|
fimmtudagur, maí 06, 2004
Veðurfréttir
Það er sko heldur betur komið sumar! Það er ekkert smá gott veður hérna núna, það er spáð 24°C í dag og það er núna kl.11 um morguninn 20°C þannig að þetta lofar góðu fyrir daginn og það er glampandi sól og nánast logn. Þegar ég fór aðeins út í morgun til að skoða veðrið þá leið manni eiginlega bara eins og í heitu löndunum.
Svo fórum við í bíó í gær, útibíó sem búið var að koma upp á torginu í miðbænum, það var búið að setja upp risatjald. Þarna voru örugglega nokkur þúsund manns. Það var setið á jörðinni og fólk kom með stóla að heiman og svo voru líka seldir uppblásnir stólar og þetta var nokkuð magnað en þar sem við komum frekar seint... um hálftíma fyrir sýningu... fengum við ekki nægilega gott stæði, svo náðum við að setjast, en það var ekki mikið útsýni það var svo rosalega mikið af fólki þannig að við héldum bara heim á leið. En þetta var samt sem áður skemmtileg upplifun.
Sólarkveðjur
Sólnni og Sólísabet
posted by Nonni & Beta 11:26
|
þriðjudagur, maí 04, 2004
Fréttir?
Já það er ekki mikið búið að vera að gerast hérna hjá okkur undanfarna daga ef undan er skilið afmælið hennar Elísabetar. Erum búin að hella okkur út í prófalestur og það tekur auðvitað einhvern tíma frá okkur. Það er reyndar búið að vera alveg frábært veður undanfarna daga svo að það er ekki eins auðvelt að halda sig við bækurnar eins og maður hefði vonað. En þetta gengur nú alveg ágætlega það er ekki það.
Svo eru einhverjir flutningabílstjórar í verkfalli hérna sem gerir það að verkum að búðir hérna eru eiginlega bara að verða tómar. Fórum út í búð áðan, Bunnpris sem er búin á horninu og í grænmetis og ávaxtadeildinni voru tveir kálhausar, nokkur kiwi, einn ananas og nokkrar appelsínur... annað var það ekki. Mjólkurvörur eru flestar líka að klárast jafnt og þétt, ætluðum að kaupa í pasta einhverja osta og dót en nei nei það var ekki til. Svo síðast en ekki síst þá var ekki til klósettpappír en það er reyndar búið að redda því... ætli það hafi ekki eitthvað íþróttalið í nágrenninu selt búðinni upp lagerinn sinn af klósettpappír til að komast í einhverja keppnisferð, það er amk ekki allir að tapa á þessu verkfalli. En þetta er allt í lagi, því okkur sýndist vera til nóg kex og snakk í hillunum.
Meira var það ekki í bili.
Kveðja
Nonni & Manni
posted by Nonni & Beta 14:46
|
|