þriðjudagur, mars 30, 2004
Páskar & Prófalestur
Við vorum að fatta það að það er ekki svo margir skóladagar eftir, við vorum að telja þetta saman og það voru ekki nema slatti eftir. Þar sem að það styttist í prófin erum við farin að huga að prófalestri. Enda er fínt að byrja í tæka tíð. Þannig að við verðum vonandi dugleg á næstunni svo að það verði ekki eins mikið stress þegar nær kemur að prófunum.
Svo eru auðvitað páskarnir á næsta leiti og það er sko ekki leiðinlegt að vita af því að einhvers staðar á flakki er páskaegg sem er að leita að okkur. Getum varla beðið eftir því að fá eggið í hús. Við vildum páskaegg með strump en það var víst ekki hægt að fá svoleiðis, hvað segiði? Er Nói hættur með Strumpaeggin og komin með einhver kjánaleg púkaegg í staðinn?
Hafiði lent í því að finna ekki baun í heystakki?
Langaði bara til að láta ykkur vita að við erum enn við sama heygarðshornið
Elísabetlingur og Nonni
posted by Nonni & Beta 21:31
|
fimmtudagur, mars 25, 2004
Nóg hó hó hó
Vá hvað ég er búinn að búa til margar mismunandi byrjanir/upphöf á þessarri færslu, veit ekki alveg hvað skal segja en okkar langar samt til að segja eitthvað. En hérna kemur eitthvað skemmtilegt. Erum búin að vera frekar lítið í skólanum í þessarri viku aðallega vegna þess að lítið hefur verið um kennslu, einhverjir kennararnir eru svo öruggir með sig að við erum að heyra að þeir séu bara að gefa okkur frí vegna þess að þeir séu alveg að verða búnir með námsefnið. Sem betur fer eiginlega því að þessir tímar sem við erum búin að vera að fá frí í hafa ekki verið þeir allra skemmtilegustu hingað til. Einn kennarinn er alveg eins og vondi tvíburi jólasveinsins, hann er ekki kátur, ekki góður við minni máttar, en hann lítur samt alveg eins út. Hann er kannski að komast í jólaskapið með því að gefa okkur frí, en við höldum hins vegar að það sé eitthvað vandamál á vinnustofunni hans og hann varð að reka álfana sína áfram til að búa til fleiri leikföng handa þessum krakkagríslingum sem heimta eitthvað fallegt í skóinn á jólunum.
Veit ekki alveg af hverju þetta skyndilega jólaskap er komið yfir mig (þetta er ég, Nonni) stóð sjálfan mig að verki áðan vera að krota á eitthvað blað sem lá á borðinu og áður en ég vissi af var ég búinn að teikna þetta líka fallega jólatréð með kúlum og skrauti. Vildi að það væri frekar sumarskap sem væri að laumast í kollinn á manni. Kominn tími til, því að flestir hérna virðast vera búnir að pakka úlpunni niður og taka upp sumarjakkana. All margar stelpur eru komnar í pils og spranga um í svoleiðis flík hérna í skólanum. Strákarnir eru þó ekki ennþá komnir í stuttbuxurnar og hlýrabolina. Held að það sé vegna þess að sumarið kom of snemma og þeir hafi náð af sér jólasteikinni (aftur kemur jólatalið).
Jæja held að það sé nóg komið af bulli í bili.
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 15:51
|
mánudagur, mars 22, 2004
Fótboltamót í loftbólu!
Við eyddum laugardeginum inni í risastórri loftbólu. Það var nokkuð gott veður úti á laugardaginn en við fórum um eittleytið með nokkrum strákum úr skólanum að keppa í fótboltamóti þar sem Nonni var að fara að sprikla með þeim. Þegar við komum að íþróttahöllinni var það eiginlega eina húsið á svæðinu, og þetta var eins og risastór loftbóla sem stóð uppúr jörðinni, alveg magnað kvikindi! Þegar við svo komum inn sáum við þetta var, já uppblásið og það var búið að koma fyrir löglegum fótboltavelli þarna fyrir, enn stærri en litla Reykjaneshöllin okkar, stolt Suðurnesjanna ásamt Garðskagavita.
En eftir einhverjar tafir hófust leikar og fyrsti leikurinn gekk ekki eins og vonast hafði verið til því að við töpuðum, og rétt rúmlega það. En annar leikurinn var mun betri þar sem við unnum glæstan sigur 4-1 og vorum þar með komnir með annan fótinn í 16 liða úrslit. Svo fór síðasti leikurinn í riðlakeppninni út um þúfur þar sem töpuðum illa. En þrátt fyrir misjafnt gengi komumst við áfram í 16 liða úrslit og þar mættum við ofjörlum okkar. Við spiluðum vel en þrátt fyrir það urðum við að sætta okkur við stórt tap.
Þar með var mótinu lokið hjá okkur og við þurftum að fara heim með súrt enni og skottið á milli handanna. Enginn Coca-Cola bikar í þetta sinn. Gengur bara betur næst. Þegar við komum út úr loftbólunni þá var klukkan um 18:20 og eina rútan sem stoppar á þessum slóðum nýfarin framhjá, og við urðum að gjöra svo vel að bíða í rétt tæpan klukkutíma eftir næstu ferð. En loksins komumst við heim, og góða veðrið var kannski ekki alveg eins hlýtt og við vonuðum því að við vorum alveg að frjósa úr kulda.
Vinur okkar sem er héðan frá Þrándheimi átti einu sinni að keppa í þessarri fótboltaloftbóluhöll og það var vont veður úti og eitthvað gekk á því að þakið á höllinni sveiflast svo mikið í vindinum að leiknum sem hann átti að spila var frestað vegna veðurs... og þetta var innanhúss.
Fótboltakveðjur frá Þrádheimi
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 16:39
|
fimmtudagur, mars 18, 2004
Love is in the air...
Já þetta rákumst við á á heimasíðu Morgunblaðsins, og jebb þetta er skólinn okkar.
Annars er allt fínt að frétta héðan frá París norðursins. Nóg að gera í skólanum og við hlökkum til helgarinnar.
Verið góð við hvort annað.
Ástarkveðjur frá Þrándheimi
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 20:04
|
miðvikudagur, mars 17, 2004
Sæl veriði!
Við erum búin að vera önnum kafinn síðustu viku eins og margir, nei það hefur eiginlega ekki verið neitt rosalegt að gerast hérna, skelltum okkur reyndar í okkar fínasta á laugardaginn og fórum út að borða á okkar uppáhaldsveitingastað hérna í borginni og það var mjög gott.
Það er bara að koma sumar hérna í Þrándheimi hægt og rólega. Það var hellirigning í morgun en þegar leið á daginn var komið þetta líka fína veður, sól og logn! Hvernig er ananas veðrið heima?
Já fyrir áhugasama þá ætlum við að segja aðeins frá Idol keppninni sem er hérna í fullum gangi og það sem var skandallinn í síðustu viku að stelpan sem var ein af sigurstranglegustu keppendunum datt út og það var undirskriftalisti í gangi til að reyna að fá hana aftur í keppnina og svaka læti bara, en eini sjensinn var að einhver myndi hætta þá fengi hún að koma inn... en hver fer eiginlega að hætta bara til að einhver annar komist inn? Bara spyr! En það er alltaf gaman að fylgjast með þessu.
Svo þrátt fyrir að Nonni hafi meitt sig á fótboltaæfingu á fimmtudaginn og svo aftur aðeins meira á mánudagsæfingunni og gat varla gengið á þriðjudeginum ætlar hann að fara að keppa í fótboltamóti um helgina þar sem nokkrir drengir sem eru með okkur í skólanum er með lið. Það verður skemmtilegt að fara að spila fótbolta með strákunum á þessu móti. Reyndar er eins og allir vita alltaf gaman í fótbolta.
Svo vorum við áðan að fá tölvuverkefni metið (eða godkjent eins og það kallast hérna) sem við erum búin að eyða ómældum tíma í síðustu vikurnar ásamt 4 öðrum krökkum. En það er alltaf svoleiðis þegar maður ætlar að sýna einhverjum eitthvað það virkar það ekki! Og þannig var það auðvitað núna, við vorum tilbúin að sýna verkefnið og þegar loksins við áttum að sýna það gekk ekki allt að óskum fullt af einföldu dóti sem við vorum búin að gera bara virkaði ekki. Þannig að við kenndum bara ansans skólatölvunum um þetta og fórum í aðra tölvu (tölvuna hennar Elísabetar) og þá loksins eftir þónokkrar athugasemdir frá stráknum sem var að fara yfir (köllum hann bara Tóti) tókst okkur að sýna verkefnið eins og það átti að vera og þrátt fyrir að vera ekki með þetta allt fullkomið þá auðvitað gat hann ekki annað gert en að segja okkur að þetta væri fínt hjá okkur og það endaði með því að við fengum meira að segja hrós fyrir þetta því að þetta leit miklu betur út en ætlast var til af okkur.
Þannig fór það, úti er ævintýri!
N org E
posted by Nonni & Beta 19:53
|
miðvikudagur, mars 10, 2004
Skólinn byrjaður á fullu eftir frí
Já skólinn er byrjaður aftur eftir frí, það er búið að vera fínt í skólanum í vikunni. Það er ekki mikið svo sem búið að gerast, en auðvitað er það stórfrétt að við fórum í skólann í morgun og það ekki í úlpunum okkar. Já Nonni fór bara á peysunni og Elísabet bara í þunnum jakka, vorboði myndi einhver segja. Það er nefnilega aðeins búið að hlýna hérna og við vonum bara að það fari ekki að kólna og snjóa enn einu sinni. Það er fínt að sumarið komi í mars.
Svo er hin kyngimagnaði þáttur Idol í kvöld í sjónvarpinu og það er loksins komið að því að úrslitin eru að byrja, 11 eru komnir í úrslit og einum verðum hent öfugum út í hverjum þætti þangað til einn stendur uppi sem sigurvegari. Þetta lítur út fyrir að verða spennandi keppni og við vonum bara að það vinni einhver.
Veit ekki alveg hvað skal segja meira í bili svo að við skulum bara láta þetta duga.
Nonni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 18:27
|
laugardagur, mars 06, 2004
Osló ferðasagan
Já við skelltum okkur til Osló á fimmtudaginn. Lögðum af stað þangað klukkan 23:05 héðan frá Þrándheimi og komum okkur vel fyrir í sætum sem virtust við fyrstu sýn vera nokkuð góð bara. Það átti eftir að breytast! Við reyndum eins og við gátum að sofna á leiðinni en það gekk ekki eins vel og við vonuðumst eftir því að við sváfum mjög lítið á leiðinni til Osló, því að það var ekki hægt að halla sætunum sem við vorum í eins og flestum hinum sætunum á lestinni. Og þegar við komum til Osló illa sofin og frekar úldin var klukkan um 7 leytið um morguninn og ekkert enn opið og skítkalt úti. En við fundum þarna í nágrenninu lítið kaffihús sem seldi heitt kakó svo að við settumst niður til að fá okkur heitt kakó í kuldanum. Eftir því sem tíminn leið fór að hlýna og búðirnar að opna.
Við röltum í átt að konungshöllinni til að skoða þó að við hefðum farið þar áður. Svo fórum við í nokkrar búðir þarna í nágrenninu í leit að skóm handa Elísabetu en það gekk ekki betur en svo til að byrja með að það voru allir flottu skórnir búnir í hennar stærð. Svo kíktum við í OsloCity og ByPorten sem eru stærstu "Kringlurnar" þarna niðri í bæ. Þar var það sama sagan allir flottu skórnir voru ekki til í hennar stærð, en í örvæntingarfullri tilraun til að selja reyndu frekar leiðinlegir sölukarlar í einni búðinni að troða inná okkur ljótum skóm í réttri stærð.
En eftir mikið labb og göngur um allt vorum við orðin frekar þreytt í fótunum svo að við vorum meira og minna að finna okkur einhverja ástæðu til að setjast niður og fá okkur hitt og þetta, ís með dýfu, kók, meira kók og svoleiðis svo eftir nokkuð mikla leit fundum svo rosalega flotta skó handa Elísabetu sem aldrei þessu vant voru til í réttri stærð.
Um kvöldmatarleytið fórum við á Friday's til að halda upp á föstudaginn sem var á föstudaginn, það var líka alveg rosalega fínt. Maturinn þarna er alltaf mjög góður, Nonni er alveg tilbúinn að fyrirgefa kokkinum fyrir að missa piparstaukinn ofaná steikina hans. Greyið Nonni er ekki mikið fyrir mjög sterkan mat en þessi steik var rosalega sterk.
Svo eftir Friday's fórum við að rölta af stað í áttina að lestarstöðinni, því að við áttum að leggja af stað heim klukkan 23:05. Þegar við vorum komin í lestina beið eftir okkur koja með sæng og kodda og eftir að hafa ekkert sofið almennilega nóttina áður var það alveg vel þegið. Og rétt eftir að lestin lagði af stað vorum við bæði steinsofnuð! Og vöknuðum ekki fyrr en þegar komið var aftur til Þrándheims.
Þannig var það!
Þetta var alveg rosalega skemmtileg ferð og góð tilbreyting, alltaf skemmtilegt að ferðast eitthvað.
Annars viljum við óska Lindu til hamingju með afmælið í gær, vonum að þú hafir notið þess vel og það var alveg rosalega gaman að tala við ykkur mæðgur í gær.
Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 14:07
|
miðvikudagur, mars 03, 2004
Osl?
Við vorum að hugsa um að skella okkur niður í bæ í dag, nema hvað að við erum nýbúin að fara niður í bæ og skoða nánast allt sem okkur langar til að skoða þar. Svo við förum eitthvað að athuga hvað það kostaði að fara til Osló í smá bæjarferð og það endaði með því að við pöntuðum ferð með lest til Osló í kvöld, förum með næturlestinni og verðum í Osló á morgun og komum svo aftur heim á föstudagsmorguninn. Okkur hlakkar bara nokkuð mikið til að kíkja til Osló það er reyndar enginn þarna til að heimsækja eins og hefur verið síðustu skipti sem við höfum stoppað þar í einhvern tíma.
Það verður örugglega skemmtilegt.
Jón og Elísabet á ferðalöpp
posted by Nonni & Beta 17:36
|
þriðjudagur, mars 02, 2004
Skari
Já á sunnudagsnóttina vöktum við langt fram eftir til að horfa á Óskarinn. Það leit ekki vel út í fyrstu þar sem eina stöðin sem sýndi Óskarinn í beinna var sænsk og við vorum ekki með hana... eða það héldum við, þegar við vorum búin að gefa upp næstum alla von um að ná þessu þá stakk Elísabet upp á því að leita að henni á sjónvarpinu og athuga hvort hún væri alveg örugglega ekki bara óvart ekki inni og jú það var auðvitað hún var þarna í felum. Þannig að við gátum tekið gleði okkar á ný aðallega vegna þess að við vorum búin að kaupa svo mikið af nammi og það var því komin fín ástæða til að fara að háma í sig gotterí. En fljótlega var maður kominn með nóg af nammi og rétt búið að veita fyrstu verðlaunin.
Það helsta á Óskarnum sem var skemmtilegt var að Hilmir snýr heim eins og hún er víst kölluð vann allt sem var í boði handa henni eða 11 verðlaun! Fyrsta ævintýra myndin til að vinna besta myndin! Þetta fór eiginlega bara eins og maður vonaði. Fyrir ykkur sem hafið ekki séð Monster með Charlize Theron þá er alveg kominn tími til að horfa á hana hún átti þetta svo sannarlega skilið. Og svo er skemmtilegt að sjá að Master and Commander fékk tvö verðlaun með tíu tilnefningar og það einhver aukaverðlaun, hún er ekkert sérstök þessi mynd, greyið.
Svo voru nokkrir skemmtilegir þarna og þar má meðal annars nefna, Will Farrell og Jack Black sem tóku lagið, Adrian Brody átti fín tilþrif, Kristallinn stóð sig ágætlega og líka Liz Tyler með gleraugna atriðið sitt.
Svo má líka minnast á þýðingarnar á helstu bíómyndunum og eins þær eru í Mogganum:
LOTR: Return of the King = Hringadróttinssöga: Hilmir snýr heim
Mystic River = Dulá
Cold Mountain = Kaldbakur
Lost in translation = Glötuð þýðing
Master and Commander = Meistari og sjóliðsforingi
Monster = Monster
er þetta ekki fínt tilefni til að segja bara "Ja hérna!" ok þýðingin á LOTR er úr bókunum sem voru gefnar út fyrir löngu, Mystic River og Dulá... ég veit ekki alveg hvað ég á að segja nema kannski bara að þetta er eitthvað dularfull þýðing. Cold Mountain og Kaldbakur... Cold Mountain var nafnið á staðnum svo að það er alveg kjánalegt að þýða þetta nafn. Lost in translation og Glötuð þýðing er skársta þýðingin af nýju þýðingunum þó þetta hljómi ekki eins aðlaðandi og enska nafnið. Master and commander og Meistari og sjóliðsforingi... er eitthvað til sem heitir sjóliðsforingi, ég bara spyr? Monster og Monster... já þetta var þýðingin hjá þeim, þeir þýddu nafnið bara einfaldlega ekki neitt, datt í hug t.d. Skrímsli einsog Monsters Inc. er þýdd sem Skrímsli hf. eða mér fannst það nokkuð rökrétt.
Annars er allt fínt að frétta.
Nonnnnnnni og Elísabet
posted by Nonni & Beta 16:29
|
|