laugardagur, desember 13, 2003
Á leið vestur um haf
Jæja núna erum við bara á leiðinni til Íslands á morgun, það er allt að verða tilbúið, búin að pakka og verið að ganga frá einhverjum formatriðum eins og er alltaf á síðustu stundu. En við verðum að viðurkenna að við hlökkum rosalega til að hitta fólkið þarna heima og komast aðeins á heimaslóðir.
posted by Nonni & Beta 21:26
|
fimmtudagur, desember 11, 2003
Prófunum er lokið!!
Honey I'm coming home...
posted by Nonni & Beta 14:25
|
miðvikudagur, desember 10, 2003
Einn dag enn.
Einn dag enn
eftir af prófunum er
virðist allir ætla að fagna
eins og krækiber
sungið eins og Eitt lag enn
Já eitt próf eftir og á morgun (fimmtudag) klukkan 14:00 er formlegur prófatími okkar þessa önnina lokið. Á morgun verður einhver fögnuður hjá bekknum þar sem allir sem vettlingi geta valdið eða á ölkönnu geta haldið verða mættir. En um daginn vorum við búin að plana ferð eitthvað út í buskann til að skoða kannski í búðir og fá okkur að borða, og það skemmtilegasta af öllu, brosa okkar breiðasta út af því að prófin verða BÚIN
posted by Nonni & Beta 21:28
|
mánudagur, desember 08, 2003
Alveg að koma!
Jæja núna er heldur betur orðið stutt í það að við komum heim í jólafrí, síðasta prófið er bara á fimmtudaginn. Það er komin gríðarleg tilhlökkun í okkur. Erum búin að vera að læra eins og fætur toga undanfarið.
En það er kominn matur biðjum að heilsa genginu!
posted by Nonni & Beta 20:14
|
|