sunnudagur, september 21, 2003
Helgin!
Á föstudaginn eftir skóla var ekki mikið um að vera, en það rættist vel úr kvöldinu þar sem við fórum í Íslendingapartý hérna í Þrándheimi í fyrsta sinn sem við gerum eitthvað Íslendingafélaginu Kjartani sem er hérna í bænum. Það var víst metþáttaka á þessu bjórkvöldi, heilir 15 manns, þeir voru að opna nýja heimasíðu félagsins og það á að reyna að virkja þetta félag hérna svolítið. Þetta var bara ljómandi fín skemmtun þarna og hver veit nema maður kíki á "fundi" þarna seinna. Dagurinn í gær og í dag fóru að mestum hluta í lærdóm, nema núna ætlum við auðvitað að skelltum okkur á pöbbinn til að horfa á Manutd - Arsenal sem er að hefjast fljótlega.
Svo viljum við enn og aftur minna á hina gríðarlega spennandi og skemmtilegu Friendssíðu og munið að ykkur er velkomið að svara spurningunum. Við lofum að hlægja ekki þó að þið svarið einhverju vitlaust
Vonum að þið hafið átt góða helgi.
posted by Nonni & Beta 16:03
|
laugardagur, september 20, 2003
Föstudags spurningarnar komnar inn
Jæja við erum búin að setja inn föstudagsspurningarnar á Friends síðuna.
Klukkan er orðin margt og við erum að hugsa um að fara að sofa, enda kominn tími til að fara að skella sér í bólið!
Góða nótt
Sofið rótt
Svo tærnar taki þrótt!
posted by Nonni & Beta 00:43
|
miðvikudagur, september 17, 2003
Nýjar spurningar
Við vorum að setja inn nýjar spurningar á Friendssíðuna svo koma svörin við þeim eftir nokkra daga og á meðan er alls ekki vitlaust að skoða þetta og spreyta sig.
.....annars er allt ljómandi af okkur að frétta.
posted by Nonni & Beta 20:41
|
þriðjudagur, september 16, 2003
So no one told you life was gonna be this way!
Jæja þá er komið að því að við segjum ykkur hvað er að frétta af okkur við erum búin að vera nokkuð dugleg í skólanum. Gengur nokkuð ljómandi bara.
Við erum búin að bæta við nokkrum linkum hérna á síðuna og þar má skemmtilegastan nefna Friends linkinn, en hann leiðir þig inn á heimasíðu þar sem þú lesandi góður getur spreytt þig á Friends spurningum. (Til að fá svarið, ýtið á spurninguna, nema við allra nýjustu spurningunum).
Af hverju þessi Friends síða? Við erum búin að vera með smá leik í gangi í nokkrar vikur þar sem við og nokkrir fjölskyldumeðlimir hafa skipst á spurningum og núna er komið ágætis safn spurninga og okkur fannst tími til kominn að leyfa öðrum að spreyta sig á þeim. Við reynum að koma með spurningar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Og svörin svo nokkrum dögum seinna. Endilega takið þátt í þessu og kommentið svörin ykkar, því fleiri - því skemmtilegra!
posted by Nonni & Beta 20:08
|
föstudagur, september 05, 2003
Gleðilega ljósanótt!
posted by Nonni & Beta 21:58
|
fimmtudagur, september 04, 2003
Fyrir ykkur sem ekkert vitið
Við erum byrjuð í skólanum á fullum krafti og það er nóg að gera, þetta lítur út fyrir að vera ansi strembin fög sem við erum í. Og við ætlum aðeins að lýsa þeim fögum sem við erum að taka núna.
- Fysikk / Eðlisfræði -
Hvað lærum við þar? Það er auðvitað eitthvað sem flestir kannast við, við erum að fjalla um hin helsta lögmál, annað lögmál Newtons virðist við fyrstu sýn vera ansi vinsælt, hinar ýmsu útfærslur og útúrsnúningar á því eru spennandi. Gæti orðið skemmtilegt.
Hvernig er kennarinn? Skrýtinn, hress, þegar hann labbar er hann með brjóstkassann út og rassin líka út en í hina áttina svo að hann er hálfskakkur greyið, hann kemur alltaf með nóg af dóti í tíma, bolta, gorma, spýtur og planka og sýnir okkur hvernig eðlisfræðin virkar. Töff gamlinga eðlisfræðilingur.
Skemmtanagildi: 6 af 10
Fræðslugildi: 8 af 10
- Algoritmer og datastrukturer / Reikniriti og tölvuuppbygging -
Hvað lærum við þar? Við hugmyndirnar á bak við góð tölvuforrit og tölvuuppbyggingu, ásamt fleiru góðgæti fyrir tölvuáhugamanninn.
Hvernig er kennarinn?Gamall, óskipulagður kall, kemur með góð komment inn á milli, kemur með góða fræðslumoli inná milli, sannkölluð gullkorn.
Skemmtanagildi: 2,5 af 10
Fræðslugildi: 4 af 10
- Matematikk 3 / Stærðfræði 3 -
Hvað lærum við þar? Diffrunarjöfnur, eitthvað verður farið út í línulega algebru og eitthvað fleira.
Hvernig er kennarinn? Skipulagður, rosalega góðlegur kall, með hræðilega lummó hárgreiðslu.
Skemmtanagildi: 8 af 10 eða 4 af 5
Fræðslugildi: 6 af 10 eða 3 af 5
(lærðum sko að stytta brot)
- Fasthetslære / ? -
Hvað lærum við þar? Við lærum hitt og þetta í burðarþolsfræði, jaðrar við eðlisfræði, erum að læra byggingatengda hluti með eðlisfræðiívafi.
Hvernig er kennarinn? Úff... hann er umm... já, hann talar asnalega norsku, mikill æsingur í honum, ekkert skemmtilegur, og já.. mjög spes.
Skemmtanagildi: efnið(5) - kennarinn (2) = 3 af 10
Fræðslugildi: 6,5 af 10
Vona að þetta eigi eftir að létta ykkur lundina og lífið, og hjálpa ykkur að skilja af hverju við getum ekki alltaf verið að leika okkur í tölvunni.
Annars er það af okkur að frétta að við fórum í partý um síðustu helgi og geðveikt stuð og nóg að gerast, og ekki fóru allir til síns heima... Við getum sagt sem svo að ástin blómstri hér í NTNU. .
Jæja pítsan og franskarnar kalla! Og maður lætur þær ekki bíða!
posted by Nonni & Beta 20:30
|
|