sunnudagur, júní 15, 2003
Nóg að gera
Eins og glöggir lesendur hafa séð erum við ekkert búin að vera neitt sérstaklega dugleg að skrifa inná þetta þessa dgana, enda erum við á Íslandi og við erum meira eða minna í sambandi við alla sem lesa þetta reglulega svo að við erum bara að slaka á og svo er líka þetta eilífa vesen að tengjast internetinu (fín afsökun, en er auðvitað bara leti) Við erum á fullu að vinna og gera ekkert. Meira var það nú ekki í bili. Góðar stundir, stundi Mundi, sem bjó á Lundi, og hélt á hundi.
posted by Nonni & Beta 15:54
|
mánudagur, júní 02, 2003
Búin að vera viku á klakanum
Sumarfrí, ekki bjóst ég við því að eiga eitthvað sumarfrí þegar ég kom heim í sumar, en ég má ekki byrja að vinna strax í fríhöfninni, þeir eru eitthvað að spara og ég byrja á miðvikudaginn. Þangað til er ég bara í sumarfríi, en Elísabet er byrjuð að vinna. Hún er svo dugleg Við fórum í útskirftarveislu á miðvikudaginn og það var svona ljómandi fínt, grillmatur og með því. Þar hittum við fullt að fólki, það er fínt að koma svona heim og hitta alla í einu, þá verður maður ekki að fara á línuna til allra í heimsókn.
Svo er næst á dagskránni að við erum að fara að hittast hinn íslenski aðall. En það eru aðaltöffararnir úr FS þegar við útskrifuðumst. Þetta verður rosalega skemmtilegt. En þangað til næst... lifið heil.
posted by Nonni & Beta 10:46
|
|