þriðjudagur, apríl 29, 2003
Núna erum við í skólanum að klára síðasta stóra verkefnið í skólanum á þessarri önn, og eftir það eru það bara prófin. Rúm vika í fyrsta próf og smá stress farið að segja til sín, get ekki sagt annað. Við erum aðallega búin að vera að hugsa um stærðfræðina en við erum að fara í 3 próf í viðbót við það. Fyrsta prófið er 7.maí.
Afmælisdagurinn hennar Elísabetar var bara nokkuð vel heppnaður, við vorum að læra stærðfræði og svo þegar við vorum búin að vera ansi dugleg fórum við út í rigninguna og í fótbolta, Elísabet var að kenna mér að sparka almennilega í tuðruna. Það var óvenju gaman í þetta sinn í fótbolta. Við erum orðin ansi klár í því að halda boltanum á lofti. Svo þegar við vorum búin að skemmta okkur í dágóða stund ætluðum við að fara eitthva að fá okkur að borða, en nei nei... fórum á uppáhalds flatbökustaðinn okkar og þá var svarið sem við fengum "We are sold out" þeir áttu ekki meiri flatbökur. Hvað gera bændur þá? Það veit ég ekki... við erum ekki bændur! Eftir smá spjall og ráðabrugg var ákveðið að skella sér og fá sér rómantískan afmæliskvöldverð á Burger King. Það var ekkert kertaljós, en mjög rómantískt samt.
posted by Nonni & Beta 16:47
|
mánudagur, apríl 28, 2003
Hver á afmæli í dag?

Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún Elísabet....
Hún á afmæli ííí daaaggg!
Hún er tuttugu og eins árs í dag,
Hún er tuttugu og eins árs í dag,
Hún er tuttttttugu og eins árrrrrs...
Hún er tuttugu og eins árs í dag!
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELÍSABET!
posted by Nonni & Beta 11:03
|
laugardagur, apríl 26, 2003
Heil vika á einum degi.
Enn ein helgin kominn, það er búið að vera rosalega mikið að gera í vikunni, erum komin á fullt í prófalestri og svoleiðis veseni. Svona það helsta sem hefur verið að gera í vikunni er það að það voru páskalok á mánudaginn. Þriðjudaginn var það smá búðarrölt hér í miðbænum, Nonni keypti sér fótbolta og það er mikið búið að leika sér hérna í íbúðinni, reyna að brjóta ekkert og það hefur ekkert verið brotið ennþá 7,9,13.
Fimmtudagurinn var eftirminnilegur, þá var verið að prófa hjólið okkar, sem við settum mynd af hérna fyrir stuttu og það var hjólað einn hring á skólasvæðinu tekinn tími og var það mjög skemmtilegt, gaman af því hvað hjólin voru mismundandi hjá krökkunum. (við setjum myndir á myndasíðuna innan skamms) t.d. var þarna eitt hjól sem komst ekki nema nokkra metra því það brotnaði hreinlega undan því framhjólið og það var skemmtilegt á að horfa, enginn slasaðist alvarlega... svo það má hlægja að þessu. Okkar hópur stóð sig með mikilli prýði, það var ekki sett neitt hraðamet en það var heldur ekki ætlunin með okkar hjóli.
Snemma á föstudags morgni fórum við í enn einn verslunarleiðangurinn og hann endaði með því að við keyptum okkur einhvern fatnað. Annað gerist ekki merkilegt fyrr um sjöleytið því þá var matur með krökkunum úr bekknum og svo helsta fólkinu sem kemur að deildinni okkar þetta var sem sagt nokkurs konar ársshátíð (gala-kvöld), og í gær var kynnt nafnið á nemendafélaginu okkar og var það skírt Hybrida sem hljómar alveg ágætlega. Það voru flest hin nemendafélögin sem voru þarna líka og gáfu deildinni gjafir og fífluðust með okkur meðan við borðuðum og þetta var bara svona rosalega vel heppnað kvöld, það var mikil stemmning á mannskapnum og við skemmtum okkur alveg rosalega vel.
Og svo dagurinn í dag, hann var tekinn mjög snemma þrátt fyrir skemmtun gærkvöldsins, Nonni stalst út úr húsi til að kaupa afmælisgjöf handa Elísabetu sem eins og allir vita á afmæli á mánudaginn. Hann kom sko ekki heim tómheltur strákurinn og það var nú kannski eins gott fyrir hann . Má ekki segja alveg strax hvað ég keypti, því annars áttar Elísabet sig á því og það er ekki rétti afmælisandinn. Svo er bara búið að vera að læra og vesenast til skiptis.
Kannski einhver þarna úti hafi gaman af því sem við sáum í morgun... eða öllu heldur ég (Nonni), ég leyfi Elísabetu ekki að kíkja, því það voru tveir strákar búnir að planta sér hérna úti í garði fyrir utan, með bjór, sófa og sængur... einungis, steinsofandi. Svo þegar ég var að horfa á þá þarna vakna þeir skyndilega og annar stendur bara upp og röltir bara um á sprellanum einum saman... það eru nefnilega ekki nema um 40 íbúðir sem snúa beint inn í þennan garð og dúddinn bara að spranga þarna um eins óg heima hjá sér. Skemmtileg tilbreyting, en ef einhver man eftir því sögðum við frá því þegar lúðrasveit vakti okkur einn morguninn hérna, ég held að þetta verði erfitt að toppa. Annars er ekkert að frétta...
posted by Nonni & Beta 19:14
|
sunnudagur, apríl 20, 2003
Páskadagur
Það er páskadagur í dag og það er einmitt dagurinn sem maður borðar óhollasta og jafnframt besta morgunmat ársins... Páskaegg! En það er eitt við þetta, maður er búinn að bíða svo lengi eftir því að borða það og maður er svo spenntur að maður er orðinn bara frekar skrítinn/skrýtinn í maganum og svo hámar maður í sig býsnin öll af súkkulaði og það er ekki alveg til að laga magann. Maður verður bara að liggja aðeins frameftir og horfa á sjónvarpið og til allrar lukku var F1 í sjónvarpinu til að skemmta manni. Við hlökkum bara til að belgja okkur meira út á eftir þegar það kemur kvöldmatur! Jæja nóg í bili.
posted by Nonni & Beta 15:22
|
laugardagur, apríl 19, 2003
Ekkert að fréttaen við bullum bara samt
Alveg að koma páskar en þið vissuð það auðvitað. Erum bara búin að vera að leika okkur í tölvunum í dag og í gær. Það er eiginlega bara svo mikið að gera í því að Elísabet er búin að setja upp bætta myndasíðu og auðvitað er kominn sér linkur á hana.
Og það er gott veður. Fór út í búð og þar var fólk á stuttbuxum og það bara svolítið langt síðan ég hef séð fólk í stuttbuxum í búðinni, enda búinn að vera vetur undanfarið.
Svo er myndin hérna bara handa Magga!
posted by Nonni & Beta 16:36
|
miðvikudagur, apríl 16, 2003
M.Ö.O. versluðum, skoðuðum, horfðum og lærðum.
Jæja við vorum að koma heim, við vorum nefnilega að horfa á RRROOOSSSAAAlegan leik, ManUtd - Arsenal. Það er annars búið að gera páskainnkaupin á þessum bænum. Þar sem það er næstum ekkert opið fyrr en eftir helgi urðum við að fara og finna okkur eitthvað í gogginn. Okkur langaði til að kaupa okkur risastóran kalkún af því að hann var á tilboði eins og Hjörleifur hefði gert. En allavega við eigum fullan ísskáp af mat. Svo kom ég líka Elísabetu smá á óvart og keypti pottablóm, maður verður nú að vera með páskaliljur á páskunum. Erum líka búin að vera að læra svolítið mikið í dag. Fórum að skoða risastóra ljósmynda sýningu sem var alveg rosalega flott, fullt, fullt af myndum allar teknar úr lofti, og allar teknar af einhverjum einum kalli. Nokkrar rosalega flottar myndir af Íslandinu góða. Margar myndir sem ég held að myndu alveg sæma sér rosalegar vel á veggjum hvers heimilis. Endilega kíkið á þetta.
posted by Nonni & Beta 23:57
|
mánudagur, apríl 14, 2003
Komum við í Hvíta húsinu
Fórum seinnipartinnn að gera eitthvað hópverkefni með tveimur stelpum úr skólanum, það gekk svona sæmilega bara. Það var alveg rosalega gott veður hjá okkur í dag, við gátum sleppt úlpunum sko. Þegar við vorum búin að læra nóg í bili fórum við heim, nema hvað þegar við ætluðum að fara að taka strætó þá ákváðum við að labba heim, það var svolítill spotti en það var bara svo gott veður. Á leiðinni komum við við í hvíta húsinu sem var bara einmitt í leiðinni svona eigilega, við höfðum ekki farið þangað áður og einhver var búinn að segja við okkur að við yrðum að fara þangað, það væri svo gott útsýni og flott að kíkja á þetta, og held að ég geti alveg sagt að við hefðum ekki verið svikin af þessu. Svo þegar líða tók á kvöldið fylgdumst við með fyrsta leik Lyn í norska boltanum á VG og hann endaði með jafntefli.
Horfðum svo á The Core og er hún bara fín mánudagsmynd.
posted by Nonni & Beta 23:27
|
sunnudagur, apríl 13, 2003
Í dag er stór dagur...
Já í dag er sko stór dagur, því Ragnar litli bróðir minn var að fermast. Það er nú ekki á hverjum degi sem einhver í fjölskyldunni minni fermist, og ég er ekki einu sinni á staðnum! *Skamm* *skamm* Elísabet.
Ég talaði áðan við alla ættingja mína í gengnum tölvumyndavél á msn, það var nú aldeilis gaman. Öll þessi sætu andlit! Þau lofuðu að senda okkur fermingarmat í emaili svo það er eins gott að þau standi við það!
Enn og aftur til hamingu með daginn Ragnar, við erum með þér í huganum! Lolló!
Og svo viljum við líka óska Steinunni innilega til hamingju með sigurinn í gærkvöldi, þetta var frábært!
posted by Nonni & Beta 16:57
|
laugardagur, apríl 12, 2003
Einn af þessum dögum
Þetta var einn af þessum dögum sem maður gerir ekki neitt, vakna um (eða eftir) hádegi. Horfði á ManUtd - Njúkastöl á VG og það var ekki leiðinlegt. Þetta var hápunktur dagsins. Svo lærum við smá stærðfræði, fórum út að labba í um 15 mín og erum að fara að horfa á einhverja bíómynd.
Svo viljum við minna alla á að bróðir hennar Elísabetar er að fara að fermast á morgun, sunnudag... vá hvað hann er orðinn stór!
posted by Nonni & Beta 22:17
|
föstudagur, apríl 11, 2003
Hlaupandi hjól!?
Mest allur dagurinn í dag er búin að fara í það að teikna hjólið okkar, þ.e.a.s. hjólið sem við erum að búa til í einu faginu, inn í tölvu.
Eins og þið sjáið á myndinni hér til hliðar þá er þetta hlaupahjól... þið vitið svona hjól sem maður hleypur á!
Þetta sem er framan á hjólinu er "vindskjerm" eða vindhlíf eins og það heitir á íslensku. Við og Jóhannes (strákur sem er með okkur í bekk) gerðum hlífina á hjólið, og eru allir kennarar mjög ánægðir með hana, hrósa okkur í hverjum tíma og segja að þetta sé ein best hannaðasta vindhlíf sem hefur verið gerð í faginu. Og svo á fimmtudaginn síðasta vorum við látin prófa hana í svona vindgöngum og reyndist okkar vindhlíf vera sú besta hvað varðar mótstöðu, ekki slæmt það.... en allavega svona lítur gripurinn út.
Hvernig líst ykkur á?
posted by Nonni & Beta 23:16
|
Páskafrí
Páskafríið er mætt á svæðið og það er ekki seinna vænna, Pálmasunnudagur á næsta leiti, og eins og einhver sagði "Á eftir Pálmasunnudegi koma páskar". Við vorum vakin í "morgun" við fallegan lúðrahljóm og hlátrasköll, við vissum ekki hvað var að gerast hérna fyrir utan, en þá var fullt af uppádressuðu fólki fyrir utan íbúðina okkar að klappa fyrir lúðrasveit nokkurri sem spilaði hátt og myndarlega. Vitum ekki hvað var að gerast en ég "Nonni" vona að þetta verði ekki svona á hverjum morgni. Kannski er þetta fínt að gera þetta að vana, alltaf síðasta skóladaginn fyrir páska að panta lúðrasveit til að vekja mann, held að það sé fín hugmynd.
posted by Nonni & Beta 11:59
|
Í dag er góður dagur til að brosa!
Jæja nú er sko að verða komið sumar hérna, og það er eins gott að snjórinn sem kom um daginn, eins og hendi væri veifað í heiðskýru lofti, komi ekki aftur. Það er núna sól úti og hún er ekkert að fela sig!
Við erum einmitt þessa stundina að vinna inni í gluggalausu herbergi í einhverri pappírsvinnu fyrir verkefni.
Og svo eru að koma páskar einhver al-gulasta hátíð ársins. En ég þekkti mann fyrir nokkrum lífum síðan sem hét einmitt Al Gulasta hann var hálfur Arabi og hálfur útlendingur, fínn kall. Annars hvetjum við alla til að prófa að brosa í dag, því það eru að koma páskar, og þá er auðvitað tilvalið að slaka á fýluvöðvunum og brosa.... vissuð þið það að það reynir á færri vöðva að brosa en að vera með skeifu? 
posted by Nonni & Beta 14:03
|
þriðjudagur, apríl 08, 2003
Nammi nammi namm...
Já við vorum að fá nammi í dag sent frá Íslandi!!
Við pöntuðum okkur páskaegg og auðvitað létum við smá auka nammi fylgja með.
Eggið kom óbrotið hingað til okkar, enda var það í alveg
risastórum kassa og vel um það búið þeir vita hvað þeir eru að gera
þarna hjá nammi.is . Það er svolítið merkilegt en við fengum náttúrulega ekki að velja okkur strump á páskaeggið okkar, en engu að síður fengum við svona skólastrump, sem passar alveg við okkur.
Nú er gaman að vera til!!
Nonni hlaupkall & Elísabet súkkulaðistelpa
posted by Nonni & Beta 15:45
|
Jæja þá er leikurinn okkar komin hérna á síðuna. Til þess að geta spilað leikinn þá verið þig líklega að hafa Java uppsett í tölvunni ykkar Góða skemmtun!!
posted by Nonni & Beta 13:02
|
mánudagur, apríl 07, 2003
Jæja þá er skólinn búinn í dag, nú er nóg að gera því það styttist í prófin....
Annars gengur okkur vel með öll lokaverkefnin sem við eigum að skila á þessari önn, við erum að búa til hjól í einu faginu og það er að verða tilbúið og svo erum við að gera tölvukortaverkefni í öðru fagi og það er líka á lokastigi og loks erum við að gera tölvuleik í enn einu faginu. Leikurinn verður klár í dag eða á morgun og er það ætlunin að setja link á leikinn okkar hérna á síðuna, og viljum við hvetja ykkur til að prófa hann þegar hann kemur (í kvöld eða á morgun).
En núna erum við að fara að baka pizzu og læra smá stærðfræði, og svo er ætlunin hjá honum Nonílíusi að fara á fótboltaæfingu í kvöld að sprikkla svolítið. En þangað til næst... hilsen Elísabet og Nonni
posted by Nonni & Beta 16:50
|
sunnudagur, apríl 06, 2003
Eins og glöggir sjá er heldur betur búin að taka síðuna okkur í gegn og er það ætlunin að koma sér aftur í gang í þessu stórbætta umhverfi, við erum ánægð með niðurstöðurnar úr andlitslyftingunni! Vona að þetta sé merki um það að vorið sé að koma með betri tíð og blómum í haga! Hvernig líst ykkur á þetta?
posted by Nonni & Beta 19:44
|
|