fimmtudagur, febrúar 20, 2003
Fórum áðan í sund, og er það í fyrsti skiptið sem við förum í sund hérna síðan við fluttum út. Þetta er aldeilis stórt "sundlaugarhverfi" það er 100m sundlaug, 6 stökkbretti og pallar, risarennibraut, öldulaug, klifurveggur fyrir ofan einn bakkann, svo maður dettur bara í vatnið, og svo auðvitað eitthvað hellingur í viðbót. Og það allt innandyra, ansi svalt. Það var bara svo rosalega hressandi að fara í sund svona eftir erfiðan skóladag.
Annað var það ekki í bili.
posted by Nonni & Beta 21:36
|
sunnudagur, febrúar 16, 2003
Myndirnar frá skíðaferðinni okkar til Åre í Svíðþjóð eru komnar á netið. Endilega kíkið á þetta! Strákarnir sem eru með okkur í bekk eru ekkert smá góðir á skíðum 
Þetta er annars búið að vera frekar róleg helgi. Horfðum á Chicago á föstudaginn, fullt af flottum dönsum í henni og því frábær mynd!
Á laugadaginn var svo leikur í sjónvarpinu Manchester - Arsenal og þurftu sumir auðvitað að horfa á leikinn og voru vægast sagt ekki sáttir að leikslokum! Nonni minn það eru sko ekki alltaf jólin.
Í gærkvöldið horfðum við svo á íslenska sjónvarpið á netinu, það var mjög skemmtilegt. Við sem sagt sáum undankeppnina fyrir Eurovision sem var sýnd á Rúv í gær.
Og svo má auðvitað ekki gleyma því að við lærðum á milli þess sem við horfðum á sjónvarpið . Alveg nóg að gera í þeim efnum!
posted by Nonni & Beta 17:06
|
föstudagur, febrúar 14, 2003
Jæja fólk við (Elísabet og Nonni) erum að fara að eyða rómantískum tíma á sjálfum Valentínusardeginum á... suðunámskeiði í skólanum! Það er eitthvað svo rosalega rómantískt við það að vera í skítagallanum að sjóða einhvað saman. Geri aðrir betur
Til hamingju Valentínus minn!
posted by Nonni & Beta 12:50
|
Afmælisbarn dagsins er: Berglind Ásgeirsdóttir.
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Berglind,
hún á afmæli í dag!!
Til hamingju með daginn!
posted by Nonni & Beta 00:38
|
miðvikudagur, febrúar 12, 2003
Jæja er ekki kominn til að segja einhverjar fréttir, og jú við erum ennþá á lífi og sprikklandi. Þetta háskólalíf er alveg að gera mann síðhærðann! Það er bara alltaf eitthvað að gera, verkefni verkefni verkefni og svo meiri verkefni. Þetta er víst bara svona... segja þeir sem þekkja þetta af eigin rammleik. Við erum samt bjartsýn ekki síst vegna þess að það er farið að hlýna hérna nokkuð vel og það er alveg að vera farinn allur snjórinn hérna, en á einum risastórum stað er ýkt mikill og þykkur klaki einmitt á leiðinni í skólann og þar sem þetta er allt í halla er það ekki fyrir töffara í strigaskóm að komast þarna upp, og maður gerir ekki eins og maður gerði þegar maður var lítill, fór bara á hnén og rölti upp á fjórum, svoleiðis gerir maður ekki barasta.
Okkur var boðið í Interrail með einhverjum strákum héðan, sem eru með okkur í skólanum, værum alveg til í það en...það er ekki allt hægt... jafnvel þó að viljinn sé fyrir hendi.
En voruð þið búin að heyra um dómarann sem var að dæma leikinn en sá atvikið ekki alveg því að "viljinn" var fyrir "hendi"!
En að alvarlegum hlutum... svona eins og blómavösum og öðru viðkvæmu... sem maður verður að fara ALveg rosalega VARLEGA með.
OK ok þetta er komin nóg í bili af aulabröndurum. nei einn enn...Voruð þið búin að heyra um aulann sem var "alvarlega" að íhuga að lyfta blómavasanum, gerði það ekki betur en svo að hann missti hann og braut hann í 13 mola, 34 búta, 2 hluta og 8 brot
En annars er allt fínt að frétta.
posted by Nonni & Beta 21:36
|
sunnudagur, febrúar 02, 2003
Jæja þá er bara skóli aftur á morgun - það verður nóg að gera, því við erum náttúrulega búin að vera í fríi í viku og þurfum því að vinna það upp!! Við gerðum annars ekki mikið merkilegt um helgina, lærðum, bökuðum sjónvarpsköku og höfðum það bara gott. Það er sko stuð í Noregi!!
Já og svo settum við myndir inn á heimasíðuna hennar Elísabetar, myndir frá Ríó, Aðalspartýum, nokkrar myndir frá svokölluðu galakvöldi í Noregi og fl og fl. Endilega skoðið!!
Vel á minnst Aðall hvernig gengur að safna fyrir næstu Ríó-ferð?
posted by Nonni & Beta 23:23
|
laugardagur, febrúar 01, 2003
Flott dagsetning í dag!! 01.02.03
posted by Nonni & Beta 22:28
|
|