föstudagur, desember 13, 2002
Jæja þá erum við komin á klakann og erum farin að skrifa eitthvað aftur. Þegar við komum heim var bara þetta fína veður hérna, miklu heitara en það sem maður á að venjast í útlöndunum þar sem við vorum. Það er mikið að gerast hjá okkur svona þegar maður er að koma heim í jólafrí, ekki bara að hitta alla og slaka á heldur þarf maður eiginlega líka að versla jólagjafir og skemmta sér. Maggi hefur nú fengið það verkefni að plana aðalspartý, Dúna sagði honum að gera það. Og við vitum að honum eigi eftir að takast það býsna vel.
Já okkur gekk ágætlega í prófunum og svo gekk heimferðin líka bara vonum framar. Við skemmtum okkur konunglega á flugvellinum í Osló í nokkra klukkutíma til að bíða eftir að stíga um borð í Flugleiðavélina. En allt gekk og við komumst á leiðarenda.
Þegar við komum heim fór nú ekki fram hjá manni að maður er kominn á réttan stað, jólaljósin í bænum sáust þegar við flugum yfir Ingólfshöfða lengst í burtu.
Svo sjáumst við bara fljótlega! Það er gaman að vera komin heim!
posted by Nonni & Beta 12:45
|
mánudagur, desember 09, 2002
Við erum búin í prófunum!
posted by Nonni & Beta 13:22
|
laugardagur, desember 07, 2002
Þessar myndir eru af brunanum hérna í Þrándheimi, fyrsta myndin er tekin út um glugga í hótelinu þar sem við áttum heima þegar við komum fyrst hingað.
Veit ekki af hverju það rifjast upp, þegar brunabjalla hringdi og vakti okkur um miðja nótt þegar við vorum þarna og einhverra hluta vegna gerði maður eins og hver annar Íslendingur, tjillaði bara og tannburstaði og svona, klæddi sig í rólegheitunum og rölti niður og beið á meðan slökkviliðið kom á staðinn. En kannski maður hugsi sig bara einu sinni um næst og drulli sér út á nærbuxunum eins og allir hinir.
Slidesjóv myndir af brunanum
posted by Nonni & Beta 15:28
|
Við áttum heima þar sem ljósblái punkturinn er og stórbruninn er þar sem rauða örin er!!

posted by Nonni & Beta 13:52
|
Við áttum heima á hótelinu sem er á Thomas Angells gt 12... Og þar sem bruninn byrjaði er bara á horninu á móti hótelinu
Þetta er alveg svakalegt.
posted by Nonni & Beta 13:42
|
föstudagur, desember 06, 2002
Þetta er merkilegur árangur í lífi hvers bloggara gestur nr.500 ekki veit ég af hverju en það er bara svona.

posted by Nonni & Beta 23:09
|
Við vorum að færa tölvurnar okkur í nýjan búning í dag, settum inn wíndós expé,
þetta á að vera ekkert mál en svo þegar við fórum að athuga update og eitthvað sem okkur var ráðlagt að gera þá bara vildi eitt update-ið.
ekki fara sama hvað við gerðum það vildi ekki klára að klárast, svo það var grátur í gnístan tanna og tölvunni var hótað rafmagnleysi en ekkert gekk alltaf lét hún eins og hún vildi... þ.e.a.s. hún hlýddi ekki.
En þetta er komið í lag núna, eftir að við fórum aftan að vandanum og hentum laki yfir hann og fleygðum honum (helv.. updatinu) í recycle bin-ið eins og það er oft kallað, og ég veit það að það að það að vá...
við verðum bara með gallaútgáfuna (sagt gaddla ((en ekki eins og í galla... buxur) heldur það sem rímar við hárlaust höfuð (skalla))) þannig að með örðum orðum erum við komin með xp og það er bara huggulegt, við erum líka að læra fyrir tölvupróf, en hvernig er annars betra að læra undir tölvupróf en að fikta og leika sér einmitt í tölvunni?
Er betra að lesa þetta svona í pörtum eins og framhaldsaga eða eigum við að hafa þetta allt í einni kös?
posted by Nonni & Beta 21:03
|
fimmtudagur, desember 05, 2002
Þetta er íbúafjöldinn á jörðinni núna
... sem sagt fleiri en hægt er að koma fyrir í einum fólksvagni!
posted by Nonni & Beta 17:19
|

Jæja núna er röðin komin að stóra færnda mínum að eiga afmæli.
Þessi mynd af honum er úr tölvuleik... já einhver tók sér tíma til að teikna hann í tölvuleik.
Til hamingju með kvartöldina Jóhann!!
posted by Nonni & Beta 11:44
|
miðvikudagur, desember 04, 2002
Jæja þá er þessi dagur að vera búinn! Við erum búin með 2 próf af 3 í skólanum okkar og það er ljómandi fínt hljóðið í okkur þessa stundina nema hvað heilinn í okkur er ekki alveg að meðtaka þetta álag og svo þegar allt álagið fór hefur hann verið með eins konar víðáttubrjálæði þarna inni í hausnum.
Er að hugsa um að hafa þetta greinaskilavænt, það er svo rosalega leiðinlegt að lesa langa og þrönga texta.
Við fórum í bíó áðan og það var fínt, ekki mikið sem þarf að hugsa í bíó, en við sáum Kissing Jessica Stein og það var bara þessi fína spólumynd á ferðinni. Hún fær þrjú spóluhulstur. En það er góð einkunn fyrir spólumynd en því miður fannst mér hún ekki mikil bíómynd.
Einn stuttur brandari hérna í lokin:
Vitið þið hvað er líkt með vottum jehova og eistum?
Svar: Bæði dingla og dingla en fá aldrei að koma inn.
posted by Nonni & Beta 20:06
|

Til hamingju með afmælið Krista María!
Þessi sæta stelpa er 5 ára í dag.
posted by Nonni & Beta 15:28
|
sunnudagur, desember 01, 2002
Svona getur háskólalífið verið!
Just a small lesson in life!
This is a great example of "did I say that out loud???"
This happened at Harvard University in October last year.
In a biology class, the professor was discussing the high
glucose levels found in semen which gives the sperm all the
energy for their journey.
A female freshman raised her hand and asked, "If I understand
you correctly, you're saying there is a lot of, as in sugar,
in semen?"
"That's correct," responded the professor, going on to add
statistical info.
Raising her hand again, she asked, "Then why doesn't it taste
sweet?"
After a stunned silence, the whole class burst out laughing.
The poor girl's face turned bright red, and as she realized
exactly what she had inadvertently said (or rather implied),
she picked up her books without a word and walked out of
class, never to return.
However, as she was going out the door, the professor's reply
was classic. Totally straight-faced he answered her question.
"It doesn't taste sweet because the taste buds for sweetness
are on the tip of your tongue and not the back of your
throat. Have a good day."
posted by Nonni & Beta 11:01
|
|